Keppni
Vínin sem fengu Gyllta glasið 2016
Nú er nýlokin keppnin um Gyllta Glasið 2016 sem var haldin í 12 sinn undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands.
Í ár var verðflokkur vína í keppni frá 2.490 kr. til 3.500 kr, sá sami og var 2015 að viðbætum rósavínsflokki og var ekkert verðþak þar, vínin máttu koma frá öllum heiminum og völdu vínbirgjar vínin sem þeir lögðu til í þessa keppni.
Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til á Hótel Hilton Nordica sunnudaginn 29 maí. Þátttakan í Gyllta glasinu í ár var góð viðað við verðflokkinn, en alls skiluðu sér 99 vín til leiks frá 13 vínbirgjum.
Í ár skreyttum við dómarapanelinn með þekktum vínsérfræðingum, vínbirgjum, reyndum vínáhugamönnum innan veitingariðnaðarins og eigum við í Vínþjónasamtökunum þeirra bestu þakkir fyrir þátttökuna í þetta mjög svo krefjandi verkefni.
Alls voru það 20 manns sem blindsmökkuðu og dæmdu vínin samkvæmt Parker skala.
Yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E H Hough margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna ásamt sérstakri aðstoð frá Peter Hansen og Ástþóri Sigurvinssyni og eiga þeir endalausar þakkir fyrir að standa að stærstu blindmökkum sem fram fer á Íslandi ár hvert, svo má alls ekki gleyma Hilton Reykjavík Nordica fyrir þeirra hlut að útvega okkur fyrsta flokks aðstöðu og þjónustu með frábærum veitingum.
7 hvítvín, 13 rauðvín og 3 rósavín urðu svo fyrir valinu og hlutu Gyllta glasið 2016. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.
Verðlaunavín Gyllta Glasið 2016
Hvítvín
Villa Maria Private Bin Sauvignon Blanc 2015, KKK
Peter Jakob Khün Jacobus Riesling Trocken 2015, Berjamór
Villa Maria Private Bin Riesling 2015, KKK
Willm Pinot Gris Reserve 2015, Haugen
Arthur Metz Pinot Gris 2015, Mekka
Dopff & Irion Cuvée René Dopff Gewurztraminer 2013, Ölgerðin
Montes Alpha Chardonnay 2014, Globus
Rauðvín
Allegrini Palazzo della Torre Ripasso 2012, Cantina ehf
Tommasi Ripasso 2014, Mekka
Tenuta Sant’Antonio Monti Garbi Ripasso 2014, Globus
Concha Y Toro Marques de Casa Concha Cabernet Sauvignon 2014, Mekka
Peter Lehmann Portrait Shiraz 2013, Globus
George Wyndham Bin 555 Shiraz, 2013, Mekka
Trivento Golden Reserve Syrah 2013, Globus
Prunotto Barbera d’Alba 2014, Globus
Torres Gran Coronas Reserva 2012, KKK
Montecillo Reserva 2010, Globus
Cune Reserva 2011, Haugen
Coto de Imaz Gran Reserva 2010, Globus
Torres Celeste 2013, KKK
Rósavín
Gérard Bertrand Côte des Roses 2015, Globus
Domaine du Tariquet Rosé du Presse 2015, Vínekran
Miguel Torres Santa Digna Rosé 2015, KKK
Vínþjónasamtökin vilja þakka öllum birgjum fyrir frábæra þátttöku og óskum sigurvegurum til hamingju.
f.h. Vínþjónasamtaka Íslands
Þorleifur Sigurbjörnsson
Ritari/gjaldkeri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Iðunn Mathöll á Akureyri opnar í dag
-
Frétt9 klukkustundir síðan
Nýr miðlægur listi yfir sveina með starfsréttindi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Veitingastaðurinn MAR opnar á Frakkastíg
-
Frétt3 dagar síðan
Atvinnurekanda skylt að greiða matreiðslumanni 1,4 milljónir króna vegna vangreiddra launa
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Fljótlegur hátíðareftirréttur – Einfaldasta skyrkaka í heimi
-
Keppni4 dagar síðan
Skráning hafin á Íslandsmót nema og ungsveina í matvæla -og veitingagreinum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Veitingageirinn í jólaskapi
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Opnunartími Innnes um jólahátíðina 2024