Vertu memm

Uppskriftir

Um sögu súkkulaðis

Birting:

þann

Súkkulaði - Baunir - Súkkulaðibaunir - Súkkulaðigerð

Súkkulaðibaunir

Um aldir hefur súkkulaði verið afar vinsælt meðal fólks um víða veröld og er litið á það sem nánast sjálfsagðan hlut í daglegu lífi fólks. En er súkkulaðið ekki bara tiltölulega nýlegur hluti af daglegu lífi nútímamannsins?

Saga súkkulaðis hefst um 200 e. Kr. hjá Aztekum og Maya indíanum í Suður-Ameríku. Þeir tignuðu kakóbaunina og álitu hana vera guðafæðu. Mayar töldu jafnvel að ef þeir drykkju óþynntan, ósættan drykk úr gerjuðum kakóbaununum myndu þeir öðlast visku, skilning og orku. Eingöngu hin ráðandi stétt og prestastéttin máttu neyta súkkulaðisins, enda var það talið heilagt.

Árið 1492 fékk Kólumbus að smakka súkkulaði og tók nokkrar kakóbaunir með sér heim til Spánar en hafði ekki hugmynd um hvernig skyldi fara með þær. Næstum því tuttugu árum síðar fór samlandi hans, landkönnuðurinn Hernando Cortez, til Suður-Ameríku og smakkaði súkkulaðidrykk Aztekanna. Hann flutti einnig baunir með sér heim og í þetta skiptið gátu Spánverjar notið súkkulaðis, lengi vel einir Evrópuþjóða. Á Spáni sættu menn reyndar súkkulaðidrykkinn sem Cortez hafði fengið hjá Aztekunum með hunangi og sykri því hann var heldur beiskur fyrir þeirra smekk. Einnig komust Cortez og félagar að því að súkkulaðidrykkurinn væri líklega bragðbetri heitur en kaldur og síðan hefur heitt súkkulaði átt vísan stað í hjörtum fólks. Spánverjar varðveittu súkkulaðileyndarmálið í heila öld áður en nágrannar þeirra fengu að njóta þess.

Spænsk prinsessa giftist Loðvíki XIII Frakkakonungi árið 1615 og þannig komst leyndarmálið upp. Brátt breiddist súkkulaðineyslan út um England, Austurríki, Ítalíu, Þýskaland og Sviss. Það var sænski grasafræðingurinn Carl Von Linné sem gaf kakótrénu hið afskaplega viðeigandi nafn Theobroma Cacao, guðafæða, árið 1753.

Á Englandi um miðja 17. öld voru stofnaðar súkkulaðibúðir og í byrjun 18. aldar voru þær jafn algengar og kaffihús. Enn var súkkulaðið þó munaðarvara og ekki á allra færi að kaupa það. Á þeim tíma var súkkulaðið alfarið handunnið en á 18. öld var kakóbaunamölunin vélvædd með gufuvélum og við það lækkaði verðið talsvert. Enn meira lækkaði það þó um miðja 19. öld þegar kakópressan var fundin upp. Ekki aðeins lækkaði verðið með tilkomu kakópressunnar heldur jukust einnig gæði súkkulaðisins. Kakópressan pressaði nefnilega hluta kakósmjörsins úr bauninni og gaf súkkulaðidrykknum þannig mýkri áferð. Árið 1876 fann Svisslendingurinn Daniel Peter upp mjólkursúkkulaðið með því að blanda mjólk saman við súkkulaði í stað vatns. Verður það að teljast straumhvörf í sögu súkkulaðisins.

Hjá Café Konditori starfar nú belgískur súkkulaðigerðarmeistari, Dries Cnockaert. Hann kemur frá borginni Brugge þar sem hann lærði list sína í handverksfyrirtækinu The Chocolate Line. Hann hefur starfað víða um Evrópu, nú síðast í Austurríki. Það er sannarlega mikill fengur í honum fyrir okkur, enda er ekki á hverjum degi sem chef au chocolat starfar á Íslandi.

Að lokum eru hér tvær uppskriftir sem ættu ekki að svíkja neinn súkkulaðiunnanda:

Mousse au chocolat
Fyrir 6-8

225 g dökkt súkkulaði
50 g ósaltað smjör
9 eggjahvítur
125 g sykur
6 eggjarauður
Bræðið saman súkkulaði og smjör í vatnsbaði. Þeytið eggjarauðurnar létt og blandið saman við súkkulaðið og smjörið. Stífþeytið eggjahvíturnar með sykrinum og blandið síðan í smáum skömmtum við súkkulaðið með sleif eða sleikju. Hellið moussinni í litlar skálar eða jafnvel expressobolla og geymið í kæli.

Dökkar truflur með hunangi

600 g 56% Valhrona súkkulaði
75 g lynghunang
4 dl rjómi
60 g smjör
Hakkið súkkulaðið og setjið í skál. Setjið hunang og rjóma í pott og hitið að suðu. Hellið því síðan yfir súkkulaðið og hrærið vel í á meðan. Bætið mjúku smjörinu í og hrærið vel. Hellið þessum massa í form og setjið plast yfir. Kælið. Rúllið massann nú í kúlur og veltið þeim upp úr kakói eða hökkuðum heslihnetum, en einnig má velta þeim upp úr bráðnu súkkulaði.

Höfundur Café Konditori.

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið