Freisting
Úldin ýsa á fiskmarkaði
Sagt var frá því í fréttum Ríkisútvarpsins í gærdag að línuýsa sem fiskverkandi í Grindavík keypti af markaði á Skagaströnd hafi reynst úldin og óhæf til manneldis.
Fiskistofan skoðaði aflann og segir fiskverkandinn að í skýrslu hennar komi fram að aflinn hafi líklega ekkert verið kældur frá því hann var veiddur á miðvikudagsmorguninn þar til hann kom til Grindavíkur í gærmorgun.
Pétur Gíslason, framkvæmdastjóri Stjörnufisks í Grindavík, segist afar ósáttur með viðskiptin við Fiskmarkaðinn Örva á Skagaströnd. Þetta sé ekki fyrsta skiptið sem hann kaupi þaðan skemmdan fisk. Pétur segir að ýsan hafi verið seld á fimmtudag sem glæný línuýsa og hafi verið landað fyrir hádegi.
Ýsuna keypti Pétur á 105 krónur kílóið. Forráðamenn fiskmarkaðarins buðu Pétri 10 króna lækkun. Þegar hann þáði það ekki var Pétri ráðlagt að fara með fiskinn á markað í Grindavík og selja hann á mánudegi. Pétur hafði samband við Fiskistofu.Pétur ætlar með málið til lögreglu og setja lögfræðing í að innheimta féð. Þá hyggst hann hafa samband við viðeigandi ráðuneyti. Séu mennirnir ekki hæfir til að reka markaðinn eigi að taka rekstrarleyfið af þeim, segir Pétur.
Fréttastofa Útvarps mun hafa reynt árangurslaust að ná tali af forráðamönnum fiskmarkaðarins Örva.
Heimild: ruv.is
-
Keppni3 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Íslandsmót barþjóna1 dagur síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Frétt5 dagar síðanSmash Style hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu



