Freisting
Stolin humar í gangi

Humarinn er pakkaður í glæra poka og er með hvítan límmiða sé sem á stendur „Atlastaðafiskur Stór“
Humarpokarnir voru pakkaðir í kassa sem á stóð „Risi“
Aðfaranótt mánudagsins 23 október var töluverðu magni af humar stolið frá Atlantstaðafisk, virðist sem einn stærðarflokkur hafi orðið fyrir valinu sem flokkast undir „Risi“ og er hver poki 2,5 kg.
Höfum frétt að það er verið að bjóða þennan humar á veitingastöðunum til sölu. Ef að þið fréttið af þessu þá vinsamlega hafið samband við RLR í síma 112.
Kveðja
Örn Garðars
sími 868-4530
Frétt frá vf.is
Tonni af humri stolið
Einu tonni af humri var stolið frá fyrirtækinu Atlastaðafiski í Njarðvík í gærnótt. Talið er að andvirði humarsins sé hátt í 5 milljónir króna. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Atlastaðafiskur verður fyrir barðinu á óprúttnum þjófum því fyrir tveimur árum var hálfu tonni af humri stolið frá sama fyrirtæki.
Fjórir lásar voru á gámnum þar sem humarinn var geymdur og má því segja að gámurinn hafi verið nokkuð rammgerður. Ekki létu þjófarnir það hindra ætlunarverk sitt því lásarnir voru klipptir af og hátt í 50 kassar af humri bornir út úr gámnum. Ljóst er að þjófarnir hafa þurft öflug verkfæri til að klippa lásana og stóran bíl til að aka þýfinu á brott.
Júlíus Högnason, eigandi fyrirtækisins, segir að þrisvar sinnum hafi verið brotist inn í húsnæðið síðastliðin tvö ár og framvegis verði svæðið vaktað með öryggismyndavélum.
Þrátt fyrir að vera tryggður fyrir tjóninu telur Júlíus að það fáist ekki bætt nema að hluta.
Hann sé tryggður að því marki sem hægt er en tapið felist helst í því að hann geti ekki selt vöruna og þar með fengið álagninguna og sá tími og vinna sem farið hafi í að vinna vöruna sé fyrir bí.
Hann segist ekki vita hverjir hafi verið að verki en óttast að humarinn verði seldur til veitingastaða á lægra verði. Sjálfur hafi hann um 30 veitingahús á höfuðborgarsvæðinu í viðskiptum og þau muni láta vita af því ef vart verður við illa fenginn humar á markaði.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Starfsmannavelta7 dagar síðanMichelin-hjónin hætta skyndilega á À L’aise tveimur mánuðum eftir nýja Michelin-stjörnu
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Frétt5 dagar síðanWilhelm Wessman fallinn frá
-
Markaðurinn5 dagar síðanSólmyrkvapylsur frá SS í takmörkuðu upplagi
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHvers vegna eru franskar ekki á matseðli Costco?
-
Frétt4 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli


