Frétt
Sölubann á rjúpum er áfram í gildi
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að veiðitímabil rjúpu verði frá 1. nóvember – 30. nóvember. Leyft er að veiða fimm daga í viku, frá föstudögum til þriðjudaga í hverri viku. Veiðibann er miðvikudag og fimmtudaga. Áfram er í gildi sölubann á rjúpum og eru veiðimenn hvattir til hófsemi í veiðum.
Með þessu fylgir ráðherra ráðgjöf Umhverfisstofnunar sem unnin var í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands, Fuglaverndarfélag Íslands og Skotvís.
Meginstefna stjórnvalda er að nýting rjúpnastofnsins skuli vera sjálfbær, sem og annarra auðlinda. Jafnframt skuli rjúpnaveiðimenn stunda hóflega veiði til eigin neyslu. Til að vinna að sjálfbærri veiðistjórnun eru stundaðar mikilvægar rannsóknir og vöktun á stofninum og síðan rekið stjórnkerfi til að stýra veiðinni að viðmiðum um hvað telst sjálfbær nýting.
Sölubann er á rjúpum en í því felst að óheimilt er að flytja út, bjóða til sölu eða selja rjúpur og rjúpnaafurðir. Umhverfisstofnun er falið að fylgja sölubanninu eftir.
Veiðimenn eru eindregið hvattir til að sýna hófsemi og eru sérstaklega beðnir um að gera hvað þeir geta til að særa ekki fugl umfram það sem þeir veiða m.a. með því að ljúka veiðum áður en rökkvar. Umhverfisstofnun verður falið að hvetja til hófsemi í veiðum sem eiga að miða við veiði til eigin neyslu.
Veiðiverndarsvæði verður áfram á SV-landi líkt og undanfarin ár. Veiðimönnum er enn fremur bent á að kynna sér takmarkanir á veiðum á friðlýstum svæðum.
Gengið er út frá að rjúpnaveiði verði með sama hætti árin 2020 og 2021 með fyrirvara þó um hugsanlegar breytingar.
Veiðimenn eru hvattir til góðrar umgengi um náttúru landsins.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMyndaveisla frá hátíðarkvöldverði Klúbbs Matreiðslumeistara 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanEyjó og Dóri mættu með afmælisköku – Hafið fagnar tímamótum
-
Keppni2 dagar síðanKokkur ársins 2026 og Grænmetiskokkur ársins 2026 fara fram í IKEA í mars
-
Uppskriftir2 dagar síðanAurore hjá Sweet Aurora deilir uppskrift með lesendum veitingageirans
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun8 klukkustundir síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Frétt4 dagar síðanTilkynning frá Suðurnesjabæ vegna umfjöllunar um Sjávarsetrið
-
Keppni3 dagar síðanFreyja Þórisdóttir stóð uppi sem sigurvegari í keppninni um Bláa Safírinn – Myndir og vídeó
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar






