Uppskriftir
Sítrusgrafinn lax
2 dl gróft salt
2 dl sykur
1 msk kóríander fræ
2 msk dill
1 stk rautt grape
1 stk lime
2 stk mandarínur
Aðferð:
Blandið saman saltinu og sykrinum. Merjið korianderfræin létt í morteli og bætið út í ásamt dillinu. Setjið 1/3 af blöndunni í fat og dreyfið vel úr því, leggið laxinn ofan á með roðhliðina niður. Setjið svo afganginn af saltblöndunni yfir. Skerið sítrusávextina í þunnar sneiðar og raðið yfir.
Geymið inni í ískáp í 1-3 sólahringa. Fer eftir því hversu stórt laxaflakið er og hversu mikið grafið þú vilt hafa það.
Höfundur er Hrefna Sætran.
-
Frétt6 klukkustundir síðanKominn með nóg af vinnutímanum og ógreiddri yfirvinnu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVerður 90 ára í febrúar og stendur enn vaktina í eldhúsinu
-
Keppni4 dagar síðanKokkalandsliðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum á HM
-
Keppni3 dagar síðanKokkalandsliðið í fjórða sæti á HM
-
Keppni5 dagar síðanFréttavaktin: Kokkalandsliðið mætir í Chef’s Table í dag
-
Keppni6 dagar síðanStór stund fram undan hjá íslenskum barþjónum
-
Markaðurinn5 dagar síðanSvartir dagar í vefverslun Nathan
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt hjá Danco! Belgískar flekakökur



