Uncategorized
Óttast um framtíð ástralskra vína
Ástralar berjast nú við mestu þurrka í sögu ástralska ríkisins en auk þess sem þurrkarnir hafa mikil áhrif á hefðbundinn landbúnað í landinu eru þeir taldir ógna vínframleiðslu í landinu og því orðspori sem fer af áströlskum vínum.
Hagsmunasamtökin CSIRO segja vínframleiðendur í sumum vínræktarhéruðum landsins þegar vera farna að íhuga að nota aðrar tegundir vínberja í framleiðslu sína og að hætt sé við því að það dragi úr gæðum vínanna. Slíkt geti leitt til þess að neytendur snúi baki við áströlskum vörumerkjum sem tekið hafi áratugi að byggja upp markað fyrir. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.
Hærri hiti gerir það að verkum að vínberin þroskast fyrr á nokkrum svæðum og það verður til þess að nokkrar tegundir vínberja verða ómögulegar til víngerðar, segir Leanne Webb, sérfræðingur CSIRO.
Ástralskir vísindamenn segja allt benda til þess að meðalhiti í landinu haldi áfram að hækka og að árið 2030 verði hann 1,7 gráðum hærri en hann er nú. Segja sérfræðingar CSIRO að það gæti dregið úr vínframleiðslu ákveðinna héraða um 12 til 57%.
Greint frá á Mbl.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanLaufey og Collab vinna alþjóðleg verðlaun fyrir bestu markaðsherferðina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFullt hús og mikil stemning á afmælishátíð Café Riis
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanEin lélegasta vínuppskera í þrjá áratugi
-
Markaðurinn4 dagar síðanBeittir Hnífar sameinast nýju fyrirtæki – Glóðin veitingavörur tekur til starfa
-
Markaðurinn4 dagar síðanKomið víða við í heimsókn KAI til Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanKokkakonur boða til stofnfundar í Bryggjuhúsinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÁhugaverð grein um fagmennsku í veitingarekstri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEin máltíð sem breytti öllu


