Viðtöl, örfréttir & frumraun
Örn steikti hrefnu í viðskiptavini Kaskó
Matreiðslumeistarinn Örn Garðarsson gladdi bragðlauka viðskiptavina Kaskó í Keflavík sl. fimmtudag er hann steikti hrefnukjöt fyrir gesti.
Örn hefur verið að matreiða hrefnukjöt í rúmt ár og segir að aðalatriðið sé að hrefnukjötið sé vel valið því stór hluti af skepnunni sé hreint ekki góður.
Það þarf að brúna hrefnuna vel og helst gera það um leið og kjötið kemur úr pokanum, það má þó ekki brúna hana í gegn heldur hafa hana hráa í miðjunni og svo sker maður hana í þunnar sneiðar, sagði Örn.
Hrefnukjötið hefur verið að ryðja sér til rúms og verður vinsælla með hverjum degi sem líður. Gestir í Kaskó voru óhræddir við að smakka kjötið og margir hverjir stukku á pakkningu hjá Erni eftir að hafa smakkað.
Fólk er duglegt að spyrja hvernig maður eigi að útbúa hrefnuna og þegar ég hef t.d. verið að nota hana í veislum þá ber ég hana oft fram hráa, svipað og sushi. Kjötið hefur verið bannað svo lengi en nú eru margir veitingastaðir farnir að bjóða upp á hrefnukjöt, sagði Örn en varaði fólk sérstaklega við því að ofelda hrefnuna.
Ef hrefnan er ofelduð þá kemur fram þetta sjófugla- lýsisbragð og það er ekki gott. Fyrir þá sem eiga birgðir af hrefnukjöti þá er gott að skera af því ysta lagið ef það hefur komist í snertingu við súrefni í einhvern tíma. Súrefnið er helsti óvinur hrefnukjötsins því þá byrjar það að brotna niður og þráabragðið kemur fram, sagði Örn að lokum.
Greint frá á Vf.is
Mynd; vf.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanArnór Ingi og Lina fá frábærar viðtökur með Skóg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Keppni3 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Frétt4 dagar síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanJapanskt gin sækir fram þrátt fyrir samdrátt í áfengissölu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum




