Freisting
Michelin Guide 2007
Michelin Guide frægi hefur opinberað í dag hverjir missa stjörnu eða hverjir fá fyrir 2007 sem yfirleitt veldur nokkru fjaðrafoki í veitingahúsaheimi.
Í ár fá 6 nýjir staðir þriðju stjörnuna eftirsótta en 6 missa eina þannig að talan (26 alls) helst óbreytt. Athyglisverðast er að Anne Sophie Pic í Valence, sonardóttir André Pic (fékk 3 stjörnur … 1934!), fær 3 stjörnur, þriðja konan á eftir tvær mères lyonnaises, þessar mögnuðu konur sem hafa ráðið ríkjum í eldhúsunum í Lyon. Auk hennar fá þeir Lameloise, í Chagny (Saône-et-Loire), í Paris hinn geðugi Bocuse d’Argent ’99 Yannick Alleno (Le Meurice), Pascal Barbot (L’Astrance), og Frédéric Anton (le Pré Catelan) sína 3. stjörnu einnig. Öll eru þau ungir meistarar, hver með sinn eigin stíl.
Eftir að Bernard Loiseau svipti sér lífi 2003 þar sem hann þoldi ekki álagið af stjörnukapphlaupinu og gæðaviðurkenningu, hefur Michelin farið varlega í sakirnar (án þess að taka óþarfa ábyrgð á þessum atburði). Breytingarnar hafa verið hógværar þangað til nú í ár.
Tveir missa eina stjörnu í París, Le Cinq (Philippe Legendre, sem er sagður á förum) og Taillevent (Jean-Claude Vrinat et Alain Solivérès) sem var í þessum lokuðum klúbbi síðan 1975 (fyrir misjafna gæðaframleiðslu). Fyrir utan París, missa stjörnu La Ferme de mon père, í Megève (Haute-Savoie), sem Marc Veyrat seldi fyrir stuttu, Buerehiesel, í Strasbourg (67), sem Antoine Westermann seldi einnig þegar hann fór á eftirlaun. L’Espérance, sem Marc Meneau rekur í Vézelay (Yonne) missir stjörnu þar sem hann er í greiðslustöðvun.
Það er gaman að lesa að Nicolas Le Bec í Lyon, sem er staðsettur beint á móti hótelinu þar sem Bocuse dOr hópurinn gisti, fær sína 2. stjörnu það var hvíslað á milli manna á sýningunni en er nú staðfest. Hinir 4 nýjir með 2 stjörnur eru Le Clos des Sens, í Annecy (Haute-Savoie), La Villa í Calvi (Korsíka), Robuchon í Monte-Carlo, og Eric Briffard í Elysées du Vernet í Paris.
Eins og Brillat Savarin sagði « Að finna nýjan rétt í eldhúsinu veitir mannkyninu meiri hamingju en að finna nýja stjörnu á himni »
Kv. Dominique
www.vinskolinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Frétt6 dagar síðanWilhelm Wessman fallinn frá
-
Keppni1 dagur síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanSólmyrkvapylsur frá SS í takmörkuðu upplagi
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHvers vegna eru franskar ekki á matseðli Costco?
-
Frétt5 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli


