Uppskriftir
Lambafille Wellington – Uppskrift
Uppskriftin er fyrir 4
Sveppamauk
- 2 box sveppir
- 1 stk skallotlaukur (gróft skorinn)
- 1 hvítlauksrif (fínt rifinn)
- 1 búnt steinselja
Setjið sveppina, hvítlaukinn og skallotlaukinn í matvinnsluvél og vinnið saman í ca. 20 sek eða þar til allt er orðið smátt skorið. Hitið pönnu og setjið blönduna á þurra pönnuna. Steikið þar til vökvinn er farinn úr blöndunni. Setjið blönduna inn ísskáp í 30 mín.
Lambafille
- 2 stk stór fullhreinsuð lambafille (ca. 800-900 gr.)
- 1 plata myllu smjördeig
- 1 msk Dijon sinnep
- 10 sneiðar af hráskinku
- Sjávarsalt
- Svartur pipar úr kvörn
- Ólífuolía
- 1 stk eggjarauða
Hitið pönnu með ólífuolíu á og brúnið lambafille-in allan hringinn. Pennslið fille-in með með dijonsinnepinu og kryddið með saltinu og piparnum. Leggið plastfilmu á eldhúsborðið sem er 40×40 cm, leggja þarf saman nokkrar filmur til að ná þessari stærð. Raðið hráskinkunni á plastfilmuna þannið að hún sé nógu stór á alla kanta til að hjúpa bæði fille-in liggjandi saman. Smyrjið lambafillein allan hringinn með dijonsinnepinu.
Smyrjið sveppamaukinu þétt yfir hráskinkuna og setjið svo bæði lambafillein liggjandi saman inn í miðjuna. Hjúpið fille-in með hráskinkunni og sveppamaukinu með því að leggja plastfilmuna varlega yfir þau og rúlla svo plastinu þéttingsfast utan um þau. Setjið rúlluna inn í ísskáp í 30 mín.
Á meðan takið þið smjördeigið og fletjið það út með kefli í stærð sem nær utan um rúlluna. Takið rúlluna út úr kælinum og takið plastfilmuna utan af henni. Setjið á mitt smjördeigið og hjúpið rúlluna með smjördeiginu. Lokið rúllunni í báða enda með smjördeiginu og setjið hana á bökunarplötu með smjörpappír á. Passið vel að samskeitin á smjördeiginu séu undir rúllunni.
Penslið rúlluna með eggjarauðunni, skerið grunnar rendur í deigið með bakinu á litlum hníf – ath. ekki skera í gegnum deigið! Saltið vel yfir deigið og setjið inn í 200 gráðu heitan ofninn í 20-25 mín eða þar til rúllan hefur náð 46 gráðum í kjarnhita. Takið út úr ofninum og látið hvíla í 10-15 mín.
Mynd og höfundur: Eyþór Rúnarsson matreiðslumeistari
-
Íslandsmót barþjóna6 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Frétt5 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý mathöll, fleiri verslanir og vinsælir viðburðir auka aðsókn í Smáralind
-
Markaðurinn6 dagar síðanPistasíu- og sítrónukaka sem bráðnar í munni






