Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Konditorsamband Íslands útbýr gluggamiða | Hér starfar konditor

Birting:

þann

Konditorsamband Íslands - gluggamiðiKonditorsamband Íslands  hefur ákveðið að ráðast í gerð gluggamiða, vegna fréttar á freisting.is (nú veitingageirinn.is) þar sem fjallað var um ólöglega notkun margra bakaría á konditori nafninu.  Miðinn er auðþekkjanlegur rauður að lit með merki sambandsins og hvítum stöfum sem á stendur „Hér starfar konditor“ Hafa þau fyrirtæki sem eiga félagsmenn í konditorsambandinu nú þegar sett þessa límmiða í glugga verslanna sinna.

Rétt er að benda á þann lagaramma sem er um iðngreinarnar, og við öll eigum að virða:

Úrdráttur úr iðnaðarlögunum nr. 42/1978
2. gr. Enginn má reka iðnað í atvinnuskyni á Íslandi eða í íslenskri landhelgi, nema hann hafi til þess fengið leyfi lögum þessum samkvæmt.
8. gr. [Iðngreinar, sem reknar eru sem handiðnaður og löggiltar hafa verið í reglugerð1) iðnaðarráðherra, skulu ávallt reknar undir forstöðu meistara.
-Meistari skal bera ábyrgð á að öll vinna sé rétt og vel af hendi leyst.
-Rétt til iðnaðarstarfa í slíkum iðngreinum hafa meistarar, sveinar og nemendur í iðngreininni.
9. gr. Rétt til að kenna sig í starfsheiti sínu við löggilta iðngrein hafa þeir einir, er hafa sveinsbréf eða meistarabréf í iðngreininni.
10.gr Meistarabréf veitir meistara leyfi til að reka þá iðngrein, er meistarabréf hans tekur til.
15. gr. Það varðar sektum:
3. Ef maður rekur löggilta iðngrein, án þess að hafa meistara til forstöðu.
4. Ef maður kennir sig í starfsheiti sínu við löggilta iðngrein, án þess að hafa rétt til þess samkvæmt 9. gr.

Eitt af frumskilyrðum fyrir inngöngu í konditorsambandið er, að meðlimir framvísi konditor sveinsbréfi eða meistarabréfi í kökugerð. Er afrit af bréfum þessum geymt hjá ritara sambandsins. Með þessu getum við ábyrgst að allir þeir sem eru meðlimir í konditorsambandi íslands eru fagmenntaðir, en greint er frá þessu á vefsíðu Konditorsambandi Íslands.

Hægt er að niðurhala merkið á meðfylgjandi vefslóð:

[wpdm_file id=10]

/Smári

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið