Freisting
Kokkarnir stækka við sig
Veisluþjónustan Kokkarnir hafa bætt Ostabúðinni í Smáralindinni við í rekstur sinn. Kokkarnir tóku við rekstrinum fyrir viku síðan.
Ostabúðin er staðsett á sama stað og Kokkarnir eru með fiskborðið í Smáralindinni.
Freisting.is hafði samband við Rúnar Gíslason, einn af eigendum Kokkanna og spurði hann nokkrar spurningar
Hvers vegna ostabúðina?
Þetta er góð viðbót við Ostaborðið í Kringlunni, því maður nær alltaf vissum samlegðaráhrifum við stækkun án mikils kostnaðar.
Borðið er búið að vera í mikilli lægð og er stefnan að rífa það upp og bæta við.
Verður breytt fyrirkomulag á rekstri Ostabúðinnar?
Aðalbreytingin er sú að við komum inn með okkar vörur s.s. salötin o.fl ásamt því að vera með meira úrval af ostum. Einnig verður hægt að fá hráskinkur og salami.
Ertu með margar teg. af ostum í boði?
Við erum með c.a. 25-35 erlendar tegundir, eftir því hvernig innflutningurinn gengur.
Eru eitthverjir ostar sem þið látið framleiða sérstaklega fyrir ykkur?
Nei
Hvað er Veisluþjónustan Kokkarnir með marga á launaskrá?
Furðufiskar ehf sem reka Kokkana eru með 28 manns á launaskrá.
Hvaða staðir eru í rekstri hjá Kokkunum?
Við erum á 8 stöðum í bænum. Öllum Hagkaupsbúðunum, Fóstbræðraheimilinu og svo þar sem öll vinnslan fer fram á Fiskislóð, en þar erum við með 460 fm vinnslu-, og skrifstofuhúsnæði.
Meira skylt efni:
Kokkarnir.is vinsæll vefur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni2 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn3 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt3 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt5 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn2 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul


