Freisting
Jeff Tunks og Cajun eldamennskan

Hver er Jeff Tunks, hann lærði sin fræði í CIA, (Culinary Institut of America ) og við útskrift hlaut hann hin virtu verðlaun Frances L .Roth fyrir framúrskarandi frammistöðu.
Hann hefur unnið á stöðum eins og Veranda Club í Atalanta og Mansion on Turtle Creek í Dallas, þar sem hann starfaði með Takashi Shirmaizu matreiðslumeistara sem hafði mikil áhrif á stefnu hans í matargerð. Hann var útnefndur Matreiðslumaður Ársins ( Chef of the Year) af samtökum veitingastaða í Washingtonborgar. Í dag rekur Jeff 4 veitingastaði í borginni sem allir njóta mikillar hylli.
Hvað er Cajun eldamennska, hana má rekja til Acadians manna fransk ættaðara sem höfðu verið reknir í burtu frá Nova Scotia árið 1754 og leituðu sumir þeirra suður til Louisiana og festu rætur meðfram ánni Misisippi, og telst það upphafssvæði Cajun eldamennskunnar í dag og sagði Jeff að þetta væri í raun eina eldunaraðferð sem væri orginal enn í USA.
Sá sem er þekktastur fyrir Cajun eldamennsku er hinn frjálslega vaxni Poul Prudhomme .
Jeff fór í gegnum sögu Cajun eldamennskunnar samtímis sem hann sýndi hvernig á að elda samkvæmt henni og útbjó 2 rétti til smökkunar fyrir gesti og var ekki annað að skilja á mönnum að þeim þótti maturinn bragðgóður. Meðal þess sem Jeff sagði að væri grunnatriði í Cajun eldamennsku væri dökkur hveitiþykkir þar sem olia, hveiti, selleri,
lauk og grænni Papriku eldað við vægan hita þar til það er orðið dökkt eftir fyrirfram ákveðnu plani, og sagði hann að eftir því sem hveitiþykkir er dekkri þá þykkir hann minna.
Dreifði Jeff blöðum með sögu Cajun og uppskriftum sem menn gætu prófað sig áfram með, að fyrirlestrinum lokið.
Má segja að þó það hafi þurft að seinka fyrirlestrinum um sólarhring ,þá var mæting nokkuð góð. Og má geta þess að fleiri
svona fyrirlestrar eru í farvatninu hjá Sæmundi Fróða .
Fyrirlestur Jeff Tunks á vegum Sæmundar Fróða í samvinnu við Food and Fun um Cajun eldamennsku.
Haldið Fimmtudaginn 22 Febrúar í Hótel og Matvælaskólanum í Kópavogi.
SH
Aðsent efni
[email protected]
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu
-
Markaðurinn5 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Markaðurinn6 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Frétt5 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð


