Pistlar
Færri en dýrari ferðamenn; er það draumsýn eða raunhæfur kostur?
Eftir að skýrsla Boston Consulting Group var birt í september sl. hefur það oftar en áður verið í umræðunni um þróun ferðaþjónustu á íslandi að við eigum að hætta að telja hausa en fara að telja krónur, eða með öðrum orðum að stemmt sé að samsetning ferðamanna sem sækir okkur heim breytist þannig að meirihluti þeirra verða ferðamenn sem kaupa dýrari vörur og þjónustu enn nú er.
Samkvæmt opinberum tölum sem birtar voru nýverið er þessu öfugt farið í dag eða að hver ferðamaður sem kemur til landsins skilur eftir sig færri krónur nú en áður, sem þýðir að stílað er inná magn en ekki gæði.
Ég fagna þessari breyttu umræðu, enda hefur það verið mín skoðun að okkur beri að skila landinu af okkur til komandi kynslóða í betra ásigkomulagi en við tókum við því, en það gerum við ekki með núverandi stefnu eða stefnuleysi í ferðaþjónustu, þar sem umræðan er að við lok þessa áratugar, 2020, gætum við verið farin að slaga nálægt tveggja milljóna markinu.
Til þess að þessu markmiði verð náð með það að leiðarljósi að við skilum landinu af okkur í betra ásigkomulagi, en við tókum við því þarf að byggja upp innviði ferðaþjónustunnar sem grundvallast á menntun í greininni, stefnumörkun í ferðaþjónustu og markaðssetningu.
Byggja þarf ferðaþjónustuna upp í sátt við íbúa landsins. Ef þess er ekki gætt er hætt við að viðhorf fólks til ferðaþjónustunnar breytist úr jákvæðu í neikvætt. Þegar er farið að örla á þessu eins og komið hefur fram í fjölmiðlum að hálfu íbúa í Reykjavík 101 sem kvarta undan umferð af völdum ferðamanna.
Reyndar get ég verið sammála þessari gagnrýni því ekki virðist vera gerðar neinar kröfur að hálfu skipulagsyfirvalda um aðgengi langferðabifreiða og að lágmarks bílastæða þörf sé uppfyllt. Ég bý í næsta nágrenni við Hótel Cabin í Borgartúni þar sem rútur skapa endalausar umferðateppur. Ég hef átt samskipti við skipulagsyfirvöld í mörgum borgum í Evrópu og Afríku í starfi mínu sem ráðgjafi í opnun hótela fyrir IHG ( InterContinental Hotel Group ) og man ég ekki eftir að hótelkeðjan hafi komist upp með að aðgengi og tilskilin fjölda bílastæða væri ekki virt, enda er það krafa keðjunnar að þessir hlutir uppfylla staðla.
Einn af grunnþáttunum í því að við getum byggt upp gæðaferðaþjónustu er hátt menntunarstig í greininni. Á degi mennta fyrir þremun árum sem Samtök ferðaþjónustunnar stendur fyrir árlega var kynnt könnun þar sem kom fram að innan við 40% af öllu vinnuafli í greininni hefði hlotið einhverja menntu í ferðaþjónustu.
Ég hef leitað eftir áliti fagaðila sem þekkja vel til á þessum vettvangi og telja þeir að þessi tala sé hugsanlega lægri,en benda jafnframt á að skoða verði hvernig hún er samsett, eru td. stjórnendur inn í þessari tölu osf.
Nú í byrjun árs kom fram í fréttum að ríkisskattstjóra hafi komið upp um hundraði miljóna skattsvik í ferðaþjónustu. Fréttinni lauk á eftirfarandi hátt ríkisskattstjóri telur að ekki hafi verið um saknæmt athæfi að ræða í flestum tilfellum, heldur vanþekkingu á rekstri.
Segir þetta ekki allt um gullgrafaraæðið sem ríkir í greininni?
Af reynslu minni sem ráðgjafi hjá IHG tel ég að til að ná árangri í gæðaþjónustu þurfi minnst 70% af starfsfólki í viðkomandi fyrirtæki að hafa menntun á því sviði sem það starfar við og að deildarstjórar hafi vald á Train the Trainer prógrammi.
Þegar kemur að áætlun um þörf á fagmönnum og menntuðu starfsfólki þarf að skoða það í samhengi við stefnumörkun í ferðaþjónustu. Sem dæmi bendi ég á að það þarf 0,2 starfsmenn pr. herbergi á tveggja stjörnu hóteli, en 2,2 til 2,5 starfsmenn pr. herbergi á fimm stjörnu hóteli.
Að lokum þetta, færri en dýrari ferðamenn er ekki draumsýn ef menntun, stefnumörkun og markaðssetning er haft að leiðarljósi.
Wilhelm W.G. Wessman,
hótelráðgjafi, leiðsögumaður og framhaldskólakennari m.m.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðan
100 myndir frá hátíðarkvöldverði KM
-
Keppni4 dagar síðan
Þessir veitingastaðir og Íslendingar eru tilnefndir til BCA 2025 – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Fyrsta heildstæða kennsluefnið í matreiðslu gefið út eftir 70 ára kennslusögu – Myndir frá útgáfuteitinu
-
Keppni4 dagar síðan
Ertu lærður matreiðslumaður eða matreiðslunemi og langar til að komast í ungkokkalandsliðið?
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðan
Reynir Grétarsson matreiðslumeistari með áhugavert fræðsluerindi um súkkulaðigerð – Myndir
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Uppskrift – Poke skál með kjúklingi og salatosti
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Uppskrift – Rjómalöguð tómatsúpa og grillað ostabrauð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Hótel og heilsulind Bláa Lónsins á meðal 10 bestu hótelum heims – Michelin