Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Byggja stærsta hótel landsins
Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við átján þúsund fermetra hótel í Vatnsmýri næsta sumar. Eigandinn segir hótelið líklega verða það stærsta á Íslandi.
Hótelum hefur fjölgað gríðarlega á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár, samhliða fjölgun ferðamanna. Ekki sér fyrir endann á þessari fjölgun, og sem dæmi má nefna fyrirhuguð hótel við Hörpu og á Hverfisgötu.
Nýverið var svo ákveðið að ráðast í byggingu hótels á lóð við gatnamót Hringbrautar og Nauthólsvegar, nærri Hlíðarenda. Ljóst er að hótelið verður engin smásmíði.
Félagið S8 ætlar að byggja allt að 360 herbergja hótel sem er í samræmi við samkomulag Reykjavíkurborgar og félagsins frá því fyrr á þessu ári. Hönnunarvinna er hafin og það liggja fyrir frumdrög að teikningum. Skipulagið liggur fyrir. Og þetta er allt samkvæmt gildandi skipulagi,
segir Jóhann Halldórsson, eigandi S8 í samtali við RÚV, og bætir því við að stefnt sé að því að hefja framkvæmdir við hótelið í maí á næsta ári. Framkvæmdir við gatnagerð eru þó þegar hafnar. Jóhann segir að byggingin verði tæplega 18 þúsund fermetrar og sennilega stærsta hótel landsins.
Hann segir stefnt að því að opna hótelið 2017.
Það er reyndar bjartsýni. En við Íslendingar erum bjartsýnir,
segir Jóhann en hafnar eru viðræður við nokkra aðila um undir hvaða merkjum hótelið verði.
En það verður eitthvað þekkt hótel sem mun hefja hér rekstur.
Ekki er búið að fjármagna verkefnið en S8 verður eigandi verkefnisins.
En síðan verður það væntanlega einhver af íslensku viðskiptabönkunum sem mun styðja við verkefnið,
segir Jóhann sem telur að verkefnið kosti um 8 milljarða.
Jóhann segir hótelframboð ekki nærri nóg til að anna eftirspurn.
Samkvæmt þeirri kynningu sem Arion banka var með í morgun [Innsk. veitingageirans: gærmorgun] er alveg ljóst að þótt þetta hótel verði byggt og allt annað sem er í burðarliðnum samkvæmt því sem Reykjavíkurborg hefur upplýst um, þá er það ekki nándar nærri nóg til að anna eftirspurn. Miðað við tvær milljónir ferðamanna í árslok 2017 vantar líklega tvöfalda þá tölu. Í dag er nýtingin 84% sem er það mesta sem þekkist í heiminum.
Aðspurður segist Jóhann ekki hafa áhyggjur af nálægð hótelsins við Reykjavíkurflugvöll. Hann segir samkomulag Reykjavíkurborgar og ríkisins alveg skýrt, um að hinni svokallaðri neyðarbraut eigi að loka.
Skipulagið eins og það er í dag gerir ráð fyrir því að þessi samningur verði efndur. Og það er ekki hægt að byggja á neinum öðrum forsendum.
Greint frá í kvöldfréttum Rúv í gærkvöldi, , en hægt er að horfa á fréttina með því að smella hér.
Mynd: Skjáskot úr kvöldfréttum Rúv.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Frétt6 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn4 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Keppni3 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Markaðurinn7 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum





