Sverrir Halldórsson
Breskt sjúkrafæði: „… lítur út fyrir að vera með exem, ég myndi alls ekki snerta hann“
Ríkisspítalarnir í Bretlandi hafa verið sakaðir um að reyna að hylja lélegt gæði á fæði sjúklinga, og samkvæmt könnun sem gerð var er um helmingur þeirra óánægður með þann mat sem er á boðstólnum. Lesendur hafa sent inn myndir til BBC news magazine, af því sem þeim var boðið upp á, ekki er hægt að tala um bragðið, en matreiðslumenn gáfu sitt álit út frá hvað þeir sáu á myndunum.
Fiskipæ án fisk eða deigs. Mynd tekin af Amanda Kirwan:
Þó svo að það séu hömlur á innkaupum, þarf það ekki að leiða af sér sjálfkrafa lélegan mat segir chef Mark Lloyd, heldur þarf að nostra við það sem er í boði. Takið til dæmis þennann rétt, ofeldaður, frekar þurrt maískorn og ofeldað spergilkál og eitthvað sem líkist kartöflum og skinku. Mjög einfalt að krydda með fersku kryddi og stökkt deig og gera réttinn meira girnilegan.
Stacy Pritchard tók þessa mynd og þekkti að það var kjúklingur á diskinum:
Hann lítur út fyrir að vera með exem, hann lítur út fyrir að vera kaldur, ég myndi alls ekki snerta hann segi Matt Tebbutt matreiðslumaður, þáttastjórnandi í sjónvarpi og veitingamaður. Þetta lítur hræðilega út, ég myndi frekar fá mér shake og taka inn vítamín heldur en að borða þetta, það væri gaman að bera þetta saman við matinn í fangelsum landsins.
Matargagnrýnandi og stílistinn Mary Cadogan segir að það sé auðvelt að gera þennan rétt girnilegri, með því að smyrja hann með hunangi og soya sósu áður en hann sé steiktur og Það myndi gefa betri lit og öruggleg betri ylm.
Helen Sleight tók mynd af þessum rétti, en engar upplýsingar fylgdu með:
Ég var að reyna að átta mig á hvað þetta væri, segir chef Tebbutt, þetta lítur út fyrir að vera vömb og kartöflur, sennilega er þetta framborið til að hressa við sjúklinga svo þeir útskrifist fyrr og hann heldur áfram, í raun trúi ég ekki að í dag að þeir séu að bera þetta fram. Ég veit ekki hver fjárhagsáætlun þeirra er, en þeir þurfa að kaupa vörur og geta gert mun betur.
Til að byrja með væri sniðugt að setja eitthvað grænt á diskinn, segir veitingakonan Sarah Willingham, það er ekki snefill af grænmeti á diskinum, margar fjöldskyldur í Bretlandi þurfa að lifa af mjög ströngum og litlum fjármunum, en samt geta þau borið fram hollari mat, heldur en þau myndu fá á spítalanum.
Næsti diskur er sendur inn af Stacy Pritchard, en eina skýring með var sú að þetta væri eitthvað í raspi:
Ég held að þetta hljóti að vera kjúklingur, kalkúnn eða svinasnitzel, segir Lloyd. Kartöflumaukið líkist að það sé ofunnið og límkennt, sem gerir að nánast óborðanlegt. Kjötsneiðið hefur verið geymd í hitaskapi í einhvern tíma og raspurinn er sveittur, engin sósa og heldur ekkert grænmeti, þetta er ekki beint lokkandi matur.
Hannah Kaye tók þessa mynd af rétti sem samanstóð af bakaðari kartöflu og blöndu af gulrótum og grænum baunum og bónusinn var eitt maískorn:
Hvar eru próteinin á þessum diski, spyr Cadogan. Það myndi lyfta þessum rétti ef það væri rifinn ostur, chilli og kannski einhver sósa og kannski smá rifnar gulrætur. Klárlega, ætti ferskt soðið grænmeti ekki að vera of stór krafa.
Næsti diskur tekinn af Amanda Kirwan, ofeldað spergikál:
Lítið á spergilkálið, segir Tebbutt, það lítur út fyrir að hafa verið soðið í ansi langan tíma og öll næring og vítamín löngu horfið úr því. Ég get mér til að það hafi verið fyrst verk í eldhúsinu að sjóða það og svo hitað upp og skammtað nær hádeginu. Það á ekki að vera stórt vandamál að elda spergilkál rétt, en klárlega hefur þessum ekki tekist það.
Stacy Pritchard tók þessa mynd af pastarétti með spergilkáli:
Allt of mikil sósa á pastanu, segir Cadogan, ég get næstum því bragðað á slepjunni. Ofeldað spergilkál, lítur illa út og lyktar óspennandi, elda það í wokpönnu hefði verið skynsamlegra hér.
Amanda Kirwan tók myndin af því sem á að vera pizza:
Ég get ekki sagt hvort þetta sé pæ eða hræðileg pizza, sama hvort er alls ekki gott, segir Lloyd. Lítur út fyrir að vera ofeldað og hefur verið haldið heitri í hitaskáp í töluverðan tíma. Það er svo lítið að það týnist á svona stórum diski, smá ferskt salat hefði breytt miklu fyrir útlitið, segir Cadogan.
Og að lokum réttur frá einkasjúkrahúsi, Brasseruð önd í rauðvínssafa:
Þetta lítur girnilega út segir, Matt Tebbutt, eiginlega lítur þetta út eins og réttur á veitingastað og það sést að það hefur verið nostrað við þennann rétt. Einnig sýnir þessi diskur að það er alveg hægt að hafa spítalamat girnilegan, bragðgóðan og hollann.
Svo læt ég fylgja mynd af einum rétti frá Hótelinu á Hringbraut til viðmiðunar:
Nú getur hver dæmt fyrir sig, hvort þeir vilja borða breskan spítalamat eða íslenskan.
Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Rótgróið bakarí / verslun og kaffihús til sölu eða leigu
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan
Frakkar sigruðu Bocuse d’Or 2025 – Sindri Guðbrandur í 8. sæti
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan
Sjáðu keppnisrétti Sindra hér – Myndir
-
Starfsmannavelta21 klukkustund síðan
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir ráðin yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan
Sindri Guðbrandur hóf keppni í Bocuse d´Or í morgun – Bein útsending
-
Keppni4 dagar síðan
Daníel Oddsson á Jungle hreppti Bláa Safírinn 2025 – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or5 dagar síðan
Sindri keppir í Bocuse d´Or
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Glæsilegt Þorrablót Íslendinga á Gran Canaria – Kristján Frederiksen matreiðslmeistari fór á kostum – Myndir