Veitingarýni
Bláa kannan – Veitingarýni
Fyrir stuttu kíktum við á kaffihúsið Bláu könnuna sem staðsett í hjarta bæjarins við Hafnarstræti 96 á Akureyri, svona rétt til að fá okkur kaffibolla. Bláa kannan var fyrst opnuð á árinu 1998 eftir miklar endurbætur á húsnæðinu.
Það er mjög hlýlegt að koma inn í kaffihúsið og skemmtilega innréttað, kökurnar, ferskleikinn er lykilatriði hjá Bláu könnunni.
Swiss Mokka og Karamellu bomba
Fyrir valinu var Swiss Mokka og Karamellu bomba. Ánægjulegt að sjá Swiss Mokka lagað frá grunni, en ekki sem takkakaffi, virkilega gott og passlegt jafnvægi á kaffinu og súkkulaðinu.
Marengstertan „Karamellu bomba“ var algjör sprengja, þvílíkt sælgæti, marengs, þykk karamellusósu ofan á tertuna og fyllt með karamellufrómas… say no more.
Bláa kannan opnar alla daga frá klukkan 10:00 með nýbökuðu brauði og lokar klukkan 23:00. Í hádeginu er boðið upp á súpu og rétt dagsins. Í hádeginu þennan dag var í boði núðluréttur með kjúkling og grænmeti á 1980 kr. og fylgir súpa og salat með, sem í þessu tilfelli var brokkolísúpa. Hægt er að fá sér einungis súpu, brauð og salat á 1680 kr. Á kvöldin er róleg kaffihúsastemning.
Við mælum með Bláu könnunni.
-
Frétt10 klukkustundir síðanKominn með nóg af vinnutímanum og ógreiddri yfirvinnu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVerður 90 ára í febrúar og stendur enn vaktina í eldhúsinu
-
Keppni4 dagar síðanKokkalandsliðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum á HM
-
Keppni3 dagar síðanKokkalandsliðið í fjórða sæti á HM
-
Keppni5 dagar síðanFréttavaktin: Kokkalandsliðið mætir í Chef’s Table í dag
-
Keppni6 dagar síðanStór stund fram undan hjá íslenskum barþjónum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanKokkar nefna uppáhaldsréttina sína í Lúxemborg
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanJakob Sundin og Joel Katzenstein á bak við barinn á Veðri










