Freisting
Að éta skóna sína..

Félagið Matur- saga-menning gengst fyrir öðrum fræðslufundi vetrarins fimmtudaginn 30. nóvember kl 20 að Grandagarði 8 í Reykjavík. Í þetta sinn verður umfjöllunarefnið Matur og ferðamennska. Íslenskur matur á borðum ferðamannsins fyrr og síð.
Sumarliði Ísleifsson, sagnfræðingur við Reykjavíkur akademíuna, ríður á vaðið þetta kvöld og fjallar um lýsingar á íslenskum mat og drykk í erlendum heimildum frá fyrri öldum, undir yfirskriftinni /Að éta skóna sína: Íslensk matarmenning í erlendum ritum um Ísland. Þar sýnir Sumarliði ýmis dæmi um erlenda texta þar sem greint er frá matarmenningu og drykkjusiðum Íslendinga á fyrri öldum og upplifun og lýsingum útlendinga á þeirri reynslu að vera í fæði á Íslandi.
Laufey Haraldsdóttir frá Ferðamáladeild Hólaskóla lítur okkur nær í tíma í seinna erindi kvöldsins, sem hún nefnir /Hafa ferðamenn áhuga á mat?
Staðbundinn matur, auðlind í ferðaþjónustu. Þar kynnir hún niðurstöður kannana á viðhorfum erlendra ferðamanna til matarins og áhuga þeirra á íslenskri matarhefð. Eins segir hún frá verkefninu Matarkistan Skagafjörður, sem er dæmi um hvernig nýta má auðlegð og menningu einstakra héraða í svæðisbundinni ferðamennsku. Að loknum erindum verður tími fyrir umræður, fyrirspurnir og spjall í bland við veitingar við hæfi.
Fundurinn „Að éta skóna sína“ verður haldinn að Grandagarði 8, fimmtudaginn 30. nóvember kl 20- 21:30 og er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Fréttatilkynning
-
Markaðurinn5 dagar síðanLaufey og Collab vinna alþjóðleg verðlaun fyrir bestu markaðsherferðina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFullt hús og mikil stemning á afmælishátíð Café Riis
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanEin lélegasta vínuppskera í þrjá áratugi
-
Markaðurinn5 dagar síðanBeittir Hnífar sameinast nýju fyrirtæki – Glóðin veitingavörur tekur til starfa
-
Markaðurinn5 dagar síðanKomið víða við í heimsókn KAI til Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEin máltíð sem breytti öllu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÁhugaverð grein um fagmennsku í veitingarekstri
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi hæfileikar verðlaunaðir í Eftirrétti ársins og Konfektmola ársins 2026


