Frétt
Framlenging viðspyrnustyrkja
Fjármála- og efnahagsráðherra mun á næstu dögum leggja fyrir Alþingi frumvarp ríkisstjórnarinnar um framhald á viðspyrnustyrkjum vegna sóttvarnaráðstafana. Gert er ráð fyrir að styrkirnir verði framlengdir í fjóra mánuði, frá desember 2021 til mars 2022.
Viðspyrnustyrkir voru veittir til að aðstoða rekstraraðila við að standa undir rekstrarkostnaði frá nóvember 2020 og út nóvember 2021. Styrkirnir nýttust ekki síst smærri rekstraraðilum, t.a.m. í ferðaþjónustu, veitingasölu, heild- og smásölu, sem og í menningargreinum. Alls hafa viðspyrnustyrkir fyrir rúmlega 10 milljarða króna verið greiddir til 1.800 rekstraraðila. Þar af hafa um 4 milljarðar króna farið til ferðaskrifstofa eða ferðaskipuleggjenda og gististaða.
Samhliða efnahagsbatanum og ekki síst fjölgun erlendra ferðamanna minnkaði aðsókn í viðspyrnustyrki. Í ljósi snöggs viðsnúnings í ferðaþjónustugreinum sem urðu fyrir áhrifum sóttvarnaráðstafana undir lok árs 2021 hefur ríkisstjórnin ákveðið að leggja til framhald styrkjanna fyrir desember 2021 og janúar, febrúar og mars 2022.
Markmiðið með styrkjunum er að rekstraraðilar geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi á meðan áhrifa faraldursins gætir, varðveitt viðskiptasambönd og tryggt viðbúnað þegar úr rætist.
Gert er ráð fyrir að skilyrði viðspyrnustyrkja verði í öllum meginatriðum óbreytt frá því sem verið hefur. Skatturinn sér um afgreiðslu styrkjanna.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Markaðurinn6 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Markaðurinn5 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Frétt8 klukkustundir síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020



