Frétt
560 sóttu um viðspyrnustyrki fyrstu vikuna
Alls sóttu 560 rekstraraðilar um viðspyrnustyrki í fyrstu vikunni eftir að opnað var fyrir umsóknir hjá Skattinum. Nú þegar hafa verið greiddar 194 milljónir króna í slíkan styrk til 154 rekstraraðila.
Viðspyrnustyrkjum er ætlað að aðstoða rekstraraðila við að viðhalda lágmarksstarfsemi meðan áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru gæti og gera samfélagið betur viðbúið því þegar heimurinn opnast að nýju. Úrræðið tekur til allra tekjuskattskyldra rekstraraðila sem verða fyrir a.m.k. 60% tekjufalli vegna heimsfaraldursins frá nóvember 2020 til og með maí 2021. Styrkfjárhæð nemur 90% af rekstrarkostnaði rekstraraðila þann mánuð sem umsóknin varðar en hún verður þó ekki hærri en sem nemur því tekjufalli sem rekstraraðili varð fyrir. Hámarksfjárhæðir styrkja nema 2 milljónum króna fyrir tekjufall á bilinu 60-80% og 2,5 milljónum fyrir tekjufall á bilinu 80-100%. Sótt er um styrkina fyrir einn mánuð í senn á vef Skattsins.
Frá því í janúar á þessu ári hafa verið greiddir um 8,7 milljarðar króna í tekjufallsstyrki en viðspyrnustyrkir eru beint framhald þeirra.
Úrræðin nýst tugum þúsunda
Síðustu mánuði hafa tugir milljarða verið greiddir í fjölbreyttan stuðning í úrræðum ríkisstjórnarinnar vegna faraldursins, en úrræðin eru á annan tug talsins. Á fjórða þúsund rekstraraðilar og tugþúsundir einstaklinga hafa nýtt stuðninginn.
Meira en 1.800 rekstraraðilar hafa sótt um tekjufallsstyrki, sem ætlaðir eru rekstraraðilum sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli í heimsfaraldrinum og er markmiðið að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum með því að styðja þau fyrirtæki og einyrkja þar sem tekjufall er meira en 40%.
Þá hafa verið greiddir tæpir 2 milljarðar króna í lokunarstyrki og rúmir sex milljarðar króna hafa verið endurgreiddir aukalega af virðisaukaskatti (VSK) vegna margs konar framkvæmda en endurgreiðslurnar nýtast einkum einstaklingum og félögum á borð við sveitarfélög, almannaheillafélög og íþróttafélög.
Lítil fyrirtæki í miklum meirihluta
Yfirgnæfandi meirihluti fyrirtækja sem nýttu sér úrræði stjórnvalda vegna faraldursins árið 2020 voru með tíu launamenn eða færri. Þannig voru þau um 82% þeirra sem nýttu úrræðin, alls rúmlega 2.500 fyrirtæki. Markmið stuðnings við fyrirtæki er að verja störf eins og kostur er auk þess að skapa öfluga viðspyrnu þegar faraldrinum sleppir.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSiggi Hall, Guðmundur og Þormóður á Kipinä
-
Markaðurinn6 dagar síðanSérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt vörumeri hjá Nathan: Musgraves Excellence
-
Markaðurinn6 dagar síðanDineout kynnir nýja klippikortalausn fyrir veitingastaði
-
Markaðurinn5 dagar síðanDanól kynnir brauð mánaðarins fyrir júlí 2026
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanKynning á Antonius, úrvalskavíar sem hefur heillað Michelin-kokka
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMichelin-stjörnukokkurinn Max Cekot opnar nýjan veitingastað í Riga
-
Frétt5 dagar síðanMatvælastofnun varar við Malwa tei vegna aðskotaefnis



