Freisting
Matreiðslumeistari opnar gallerí
Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari hefur í nógu að snúast þessa helgi eins og reyndar flestar helgar.
Í kvöld verður hann önnum kafinn með svuntuna rígbundna utan um sig á herrakvöldi Lionsklúbbsins Njarðar sem verður haldið á Hótel Sögu. Við höfum
verið með þetta í Súlnasalnum frá 1983. Þetta verður 200 manna veisla og heljarinnar málverkauppboð líka. Þarna verða tuttugu verk boðin upp, segir Úlfar, hress í bragði.
Á boðstólum verða meðal annars nauta- og kálfahryggssneiðar með uxahalakjöti, gljáð sósa og reykt paprika. Segist Úlfar hreinlega fá vatn í munninn við tilhugsunina.
Á morgun mun Úlfar síðan opna nýtt myndlistagallerí sem nefnist einfaldlega Gallerí Úlfar. Er það staðsett á horni Baldursgötu og Óðinsgötu, á móti veitingastað hans, Þrír Frakkar. Úlfar hefur verið með aðstöðu í húsinu fyrir starfsfólk og skrifstofur auk þess sem þvottahús hefur verið rekið þar. Eftir að húsnæðið var endurskipulagt kom fram sú hugmynd að opna þarna gallerí í einu herberginu.
Sigurdís Harpa Arnardóttir mun vígja húsnæðið með málverkasýningu sinni á morgun og verður galleríið opnað klukkan 16.00. Úlfar segist alla tíð hafa verið mikill myndlistaáhugamaður. Ég lærði hjá Tolla í Síld og fiski og var að vinna á Holtinu og í Leikhúskjallaranum. Þú getur rétt ímyndað þér hvort maður hafi ekki smitast örlítið, segir hann. Það er svo yndislegt að hafa málverk á veggjunum. Ég er með bíladellu, sjóstangaveiðidellu og svo myndadellu. Ég vil aðeins leggja mitt lóð á vogarskálarnar með þessu galleríi og rétta fram hjálparhönd ef ég get.
Á sunnudaginn verður Úlfar á vaktinni á veitingastað sínum, rétt eins og hann verður megnið af laugardeginum.
Birt á vísir.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Starfsmannavelta24 klukkustundir síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn16 klukkustundir síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Markaðurinn6 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Markaðurinn5 dagar síðanDineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl



