Freisting
Einblínir á sushi-markaðinn

Dótturfélag Atlantis Group, félags í íslenskri eigu, er orðið langstærsta fyrirtækið á sviði túnfiskseldi í heiminum eftir sameiningu við mexíkóskt eldisfyrirtæki.
Fyrirtækið framleiðir nú 20 til 30 prósent af öllum bláuggatúnfiski sem alinn er í kvíum í heiminum, en þetta kemur fram í Fréttablaðinu.
Ég held við getum verið tiltölulega ánægðir með þetta, með þessum kaupum ríflega tvöföldum við starfsemina hjá okkur,“ segir Óli Valur Steindórsson, forstjóri Atlantis Group. Hann verður jafnframt forstjóri sameinaðs dótturfélags, sem fær nafnið Umami Sustainable Seafood.
Kali Tuna, dótturfélag Atlantis Group, hefur stundað túnfiskseldi við Króatíu undanfarin ár. Fyrirtækið sameinast nú Baja Aquafarms, sem ræktar túnfisk undan ströndum Mexíkós.
Óli Valur segir allan túnfisk sem alinn hafi verið hingað til hafa verið seldan til Japans, þar sem hann hafi verið notaður hrár til sushi-gerðar. Atlantis stefni á að komast inn á sushi-markaðinn í Bandaríkjunum, og þá skipti miklu að framleiða nærri Bandaríkjunun. Fyrirtækið ætli að einblína að mestu á framleiðslu á túnfiski fyrir sushi-gerð, fiskurinn sé margfalt betri í sushi en á grillinu. Þegar maður er vanur silkinu vill maður ekki ullina,“ segir Óli Valur í viðtali við Fréttablaðið.
Kaupsamningurinn hljóðar upp á 28 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir um 3,4 milljörðum króna á gengi gærdagsins.
-
Markaðurinn4 dagar síðanLangar þig að reka eldhús með mikla möguleika?
-
Frétt6 dagar síðanEinkakokkar meðal eftirsóttustu matreiðslumanna heims
-
Frétt7 dagar síðanÍslenskir veitingastaðir sagðir of tregir til að hækka verð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLitlu hlutirnir skipta mestu máli hjá Agga Sverris
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanHeilum gámi af kampavíni stolið á leið til Íslands
-
Frétt5 dagar síðanEinsi Kaldi og Vöruhúsið semja við Vestmannaeyjabæ
-
Frétt6 dagar síðanVanmerkt pestósósa innkölluð úr verslunum Krónunnar
-
Frétt6 dagar síðanPálmasykur frá Royal Orient innkallaður


