Viðtöl, örfréttir & frumraun
Súkkulaðikaffihúsið Fríða opnar á ný eftir framkvæmdir
Súkkulaðikaffihúsið Fríða á Siglufirði var lokað í janúar vegna framkvæmda en opnaði að nýju 1. febrúar s.l.
„Já, til að geta boðið upp á vöfflur þurfti ég meira pláss og þess vegna fór ég í þessa viðbót núna,“
segir Fríða í samtali við siglfirdingur.is, en þar á hún við nýtt þjónustuborð að austanverðu í aðalsalnum, sem auðveldar mjög alla afgreiðslu á téðri vöru. Framkvæmdir stóðu að mestu yfir í nóvember en verkið kláraðist fyrir skemmstu. Auk þess var bætt við nýjum kæli.
Súkkulaðikaffihús Fríðu Bjarkar Gylfadóttur að Túngötu 40a á Siglufirði er orðið þekkt kennileiti þar í bæ, þótt ekki séu nema rúm tvö ár síðan það var opnað, eða nánar tiltekið 25. júní 2016.
Sjá einnig: Nýtt kaffihús opnar á Siglufirði með eigin súkkulaðiverksmiðju
Þar hafa frá upphafi verið á boðstólum handgerðir konfektmolar úr úrvalssúkkulaði, belgísku, auk margs annars. Og heimafólk og ferðamenn, innlendir sem erlendir, hafa streymt þangað, auk þess sem hægt hefur verið að panta siglfirska dýrindið í gegnum vefsíðuna frida.is.
Nánari umfjöllun er hægt að lesa á siglfirdingur.is hér.
Mynd: siglfirdingur.is
-
Markaðurinn5 dagar síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina
-
Keppni5 dagar síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
-
Markaðurinn5 dagar síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
-
Markaðurinn4 dagar síðanMata hf. tekur við dreifingu á Nordic Wasabi
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna
-
Keppni2 dagar síðanJakob Alf stóð uppi sem sigurvegari





