SSS-Sveitin
Von mathús – Veitingarýni
Á nýju ári eru við SSS félagar komir á kreik. Nú erum við staddir í Hafnarfirðinum á VON mathúsi, staðsettu í skjólgóðu porti við Strandgötuna með útsýni yfir smábátahöfnina. Eigendur VON mathúss eru veitingahjónin Einar Hjaltason og Kristjana Þura Bergþórsdóttir.
Þetta húsnæði hefur sem sagt skipt um hlutverk en þarna var bátasmiðjan Dröfn áður og þess vegna hátt til lofts og vítt til veggja.
Þrátt fyrir hráleika og mikla lofthæð þá hefur tekist einkar vel að standsetja fallegt mathús þarna, gott aðgengi og rúmt á milli borða og er þægilegt að sitja og vera við. Opið eldhús og nærvera starfsfólks er með miklum ágætum. Þjónustan heimilisleg en þó með festu sem lætur gestunum líða vel hvort sem þeir eru uppábúnir eða ekki. Við fengum greinagóða lýsingu á þeim réttum sem bornir voru á borð til okkar.
Allt bókað undir dulnefni líkt og SSS-sveitin er þekkt fyrir og vissu hvorki salurinn né eldhúsið að nú skal rýna vel í matinn og þjónustuna hjá staðnum.
Matseðillinn er lítill sem er í raun skynsamlegt, en hann er breytilegur eftir árstíðum og breytist á 2-3ja mánaða fresti.
Við völdum 5 rétta smakkseðilinn:
„Fyrst kom súrdeigsbrauð á borðið, nýbakað og gott. Smjörið var hrært með sjávarsalti og tímian.“
„Laxinn var mildur og alveg hæfilega kryddaður. Yfir heildina var samsetning á laxi og meðlæti virkilega vel heppnað og mjög bragðgott.“
„Kjötið hefur verið skorið í sneiðar, snöggristað á pönnu og síðan skorið í litla bita. Bragðið var gott en það vantaði meiri karakter í réttinn og var því frekar hlutlaus.“
„Þorskurinn var ristaður og passlega eldaður. Auk ofangreinds mátti finna nípu, sellerírótarmauk og sinnepsfræ. Mjög góður réttur. Sinnepsfræin komu skemmtilega á óvart sem gerði réttinn einstakann.“
„Þetta var bragðgóður réttur og ekkert út á hann að setja. Hinsvegar er nautakinn þungur réttur og spurning hvort hann eigi heima í fimm rétta matseðli. Við vorum sammála um að við hefðum frekar valið lambahrygg eða jafnvel kjúkling sem var á matseðlinum.“
„Sætan í þessum óhefðbundna Crème brûlée og sýran í meðlætinu gaf gott jafnvægi. Mjög gott.“
„Þegar hér var komið sögu bauðst okkur að smakka á nýjum Vegan eftirrétti sem verður á nýjum matseðli sem er í vinnslu. Þetta er vissulega óvanaleg samsetning og kom ánægjulega á óvart. Frískandi og gott“
Heimalagaða konfektið og Caapucino kaffið var mjög gott. Til gamans má geta að Caapucino kaffið var borið fram í handunnum bollum, falleg Íslensk hönnun frá handverksverkstæði sem staðsett er í gamla frystihúsinu við smábátahöfnina í Hafnarfirði. Annar borðbúnaður er frumlegur og alveg í takt við staðinn.
Niðurstaða:
Von er góð og skemmtileg nýjung í veitingahúsaflóru höfuðborgarsvæðisins, rekinn af metnaðarfullu fagfólki.
Ef við ættum að taka Michelin upprunalega snúninginn á þetta s.s. ef veitingastaður er virði heimsóknar þá 1*, ef hann er þess virði að taka smá aukakeyrslu 2* og ef hann er þess virði að leggja hreinlega sér ferð til að heimsækja hann 3 *. Einmitt þess vegna fellur Von mathús inn í síðasta flokkinn.
Við héldum sælir og vonglaðir út í nóttina.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Nýr Indverskur veitingastaður opnar í Miðbæ Selfoss
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel11 klukkustundir síðan
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
-
Keppni10 klukkustundir síðan
Grétar Matthíasson er Meistari meistaranna
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri Guðbrandur keppir 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Dill opnar á ný eftir breytingar – nú með nýju borðabókunarkerfi Noona
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun11 klukkustundir síðan
Kristinn Frímann bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á togaranum Kaldbak – Myndir
-
Keppni2 dagar síðan
Matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana í húsi Fagfélagana