Vertu memm

Freisting

Stjörnum prýtt matartímarit

Birting:

þann

Nanna RögnvaldsNýtt matarblað lítur dagsins ljós í nóvember undir nafninu Bístró. Ritstjórn blaðsins er að mestu skipuð gömlum starfsmönnum Gestgjafans með þær Nönnu Rögnvaldardóttur og Friðrikku Hjördísi Geirsdóttur í broddi fylkingar en með þeim verða ljósmyndarinn Gísli Egill Hrafnsson, vínsérfræðingurinn Þorri Hringsson og Sólveig Jónsdóttir, sem öll hafa unnið saman á einn eða annan hátt undanfarin ár.

„Þetta er stjörnum prýtt lið,“ segir Friðrikka en þegar Fréttablaðið náði tali af þeim stöllum höfðu þær nýverið lokið við fund með starfsmönnum blaðsins og ljóst að mikil spenna og eftirvænting var í loftinu hjá þeim. „Þarna fer saman alveg gríðarleg reynsla og fjölbreytileiki þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi,“ bætir Nanna við.

Bistro verður að upplagi matar- og lífsstílstímarit með aðgengilegum uppskriftum fyrir sem flesta. „Við ætlum að fylgjast með því sem er í gangi kringum okkur,“ segir Friðrikka. „Og tengja okkur við það besta sem gengur og gerist út í hinum stóra heimi,“ bætir Nanna við.

Hvorki Nanna né Friðrikka voru hræddar við samkeppnina sem fyrir er á markaðinum. „Við erum í raun ekkert að hugsa um það,“ segir Nanna. „Við erum að byggja upp nýtt og ferskt blað og ætlum ekki að horfa um öxl,“ bætir hún við og segir það hafa verið kærkomið að skipta um umhverfi enda gefist henni nú tækifæri til þróa þær nýju hugmyndir sem hún hafi í kollinum. „Ég get lofað því að það verður mikil matgleði og ást í blaðinu,“ segir Nanna.

Greint frá á visir.is

[email protected]

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss
  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.

Mest lesið