Freisting
Snjósleðadeild Freistingar auglýsir
Nú er fyrirhuguð sleðaferð um aðra helgi, 24.-26. mars n.k. Þegar hefur verið bókuð gisting í fullbúnum bústöðum við rætur Snæfellsjökuls, nokkrir sleðarmenn og konur eru komin í hópinn. Áætlað er að leggja í hann um hádegi föstudaginn 24. og ná seinni partinum til þess koma sér fyrir og jafnvel skoða færið á jöklinum. Tveir stórir jeppar eru komnir í hópinn til að skríða upp jökulinn, og þeir sem ekki eiga sleða koma auðvitað með skíðin, brettið, snjóþotuna, jeppann eða bara sjálfan sig og vettlinga til að njóta útsýnisins
og félagsskaparins.
Færðin hefur verið fín á jöklinum og mikil umferð fólks uppá jökulinn í vetur sökum snjóleysis annarsstaðar.
Í sömu ferð á að undirbúa skemmtiatriði fyrir árshátíð Freistingar, sem er á næsta leiti og er árshátíðarnefnd í miklum undirbúningi fyrir fundinn 3. apríl þar sem hún leggur fyrir atkvæðagreiðslu tillögur sínar og hugmyndir.
Ennþá er laust pláss í gistingu og í bílum til að ferðast á milli. Vitað er um laust pláss fyrir einn sleða á tveggjasleða kerru og snjósleðadeildin er einnig með kerrur til leigu gegn vægu gjaldi.
Nú er bara að fara í geymsluna og grafa upp snjógallann, góða skapið og skella sér á jökulinn helgina 24.-26 mars. Vinsamlegast skráið ykkur sem allra fyrst, allt áhugafólk um veitingabransann og mótorsport velkomið ! Í pantaða gistingu er úthlutunarreglan: fyrstir koma fyrstir fá !
Halli, s: 6920483
[email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn3 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn2 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt1 dagur síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni1 dagur síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí



