Vertu memm

Frétt

Kaka ársins á leið til Flórída

Birting:

þann

Henrý Þór Reynisson, bakari, sigraði keppnina um Köku ársins hjá Landsambandi Bakarameistara en keppnin var haldin í Hótel og matvælaskólanum. Kaka ársins ber heitið Tonka súkkulaðidraumur og inniheldur hún súkkulaðisvampbotn, súkkulaðimús með tonkabragði (krydd sem fer vel með súkkulaði), karamellumöndlum og súkkulaðikremi.

Kakan verður til sölu í bakaríum félagsmanna LABAK um land allt, og út árið 2007.

Dómarar voru þau Margrét Friðriksdóttir, skólameistari MK, Anna Sigríður Ólafsdóttir, lektor í næringarfræði við KÍ og Ingvar Guðmundsson matsveinn og innkaupastjóri Hótel- og matvælaskólans.

Henrý er nýkomin heim eftir að hafa verið konditor í Harrods í London í tvö ár. Henry er kominn af bakaraætt og starfar hjá Reyni bakara, ásamt föður sínum og bróður, en hann staldrar ekki lengi hér á Fróni, því að hann kemur til með að fara með Köku ársins til Flórída á næstunni, en hann er einmitt að fara opna bakarí.

Hákon Már Örvarsson

Aðrir sem koma að bakaríinu eru Patricia M. Bono og Jónína Pálsdóttir, Guðjón Jónsson ásamt föður sínum Reyni bakara í Kópavogi og bróður sínum Þorleifi. Einnig kemur Hákon Már matreiðslusnillingur og Bocuse d´Or kandítat 2001 til með að aðstoða þau í byrjun, en bakaríið verður staðsett í Clemont, sem er borg rétt norðaustan við Orlando.

Henrý var í viðtali í morgunþættinum Ísland í bítið, smellið hér til að horfa á viðtalið.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið