Freisting
Rándýr pítsa

Enski stjörnukokkurinn Gordon Ramsey hefur það nú á samviskunni, að ekki er lengur hægt að setja samasemmerki á milli pítsu og tiltölulega ódýrs skyndibita.
Ramsey á matsölustaðinn Maze við Grosvenortorg í miðborg Lundúna. Fyrr á þessu ári lýsti Ramsey því yfir að hann ætlaði að búa til þá stórkostlegustu pítsu sem nokkru sinni hefði sést. Nú er pítsan komin út úr ofninum og á matseðil Maze. Þótt pítsan láti ekki mikið yfir sér hljóta gestir að glenna augun upp yfir verðinu því skammturinn kostar jafnvirði 14 þúsund króna.
Að sögn fréttavefjar Aftonbladet er skýringin á verðinu aðallega sú, að á pítsuna eru notaðir Umbria-jarðsveppir en kílóið af þeim kostar um 180 þúsund krónur.
Gordon Ramsey varð árið 2001 annar Bretinn, sem fékk þrjár Michelin-stjörnur. Aftonbladet segir að fræga fólkið sæki gjarnan Maze veitingahúsið og þau David og Victoria Beckham séu meðal fastagesta á staðnum. Það sé þó vissara fyrir gesti að haga sér vel: Ramsey er sagður skapbráður og eitt sinn henti hann leikkonunni Joan Collins út af staðnum.
Birt á mbl.is
Auðunn Valsson
-
Markaðurinn4 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn4 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn3 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt2 dagar síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni2 dagar síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí
-
Markaðurinn3 dagar síðanYfirkokkur/Verkstjóri óskast



