Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Klúbbur matreiðslumeistara reiðir fram þjóðarréttinn um land allt á morgun

Birting:

þann

Eldað fyrir Ísland

Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir landsæfingu á morgun sunnudaginn 19. október, milli klukkan 11-15, og býður þjóðinni jafnframt í mat. Alls verða 48 fjöldahjálparstöðvar opnaðar um allt land þar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins standa vaktina, rétt eins og um alvöru neyðarástand væri að ræða.

Klúbbur matreiðslumeistara leggur Rauða krossinum lið á landsæfingunni með því að reiða fram þjóðarréttinn, íslenska kjötsúpu.

Á síðustu vikum höfum við sem búum á þessari eyju í Norður-Atlantshafi verið rækilega minnt á kraft óútreiknanlegra náttúruafla, að því er fram kemur á heimasíðu Rauða Krossins.  Hættan er ætíð til staðar fyrir alla sem hér eru staddir, þar sem neyð gæti orðið raunin á örskammri stundu. Skapist alvöru neyð er mikilvægt fyrir alla landsmenn, og gesti okkar einnig, að vita hvert á að sækja hjálp og hvar er hægt að komast í öruggt skjól.

Rauði krossinn á Íslandi vonast til að sjá sem flesta á landsæfingunni. Það er hagur okkar allra.

Hér má sjá lista yfir þær fjöldahjálparstöðvar sem verða opnaðar á morgun sunnudag:

Eldað fyrir Ísland

Myndir: raudikrossinn.is

/Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið