Frétt
Veitingastyrkir samþykktir á Alþingi
Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um styrki til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma vegna Covid 19 var samþykkt á Alþingi í dag.
Nýsamþykkt lög gera ráð fyrir að einstakir rekstraraðilar geti fengið allt að 12,5-15 milljónir í styrki til að standa undir rekstrarkostnaði á fimm mánaða tímabili. Hægt verður að sækja um styrkina hjá Skattinum.
Styrkirnir fela í sér áframhaldandi stuðning við mikilvæga atvinnugrein sem hefur orðið fyrir tjóni vegna sóttvarnartakmarkana að undanförnu. Úrræðið í nýsamþykktum lögum byggist á grunni viðspyrnustyrkja sem veittir voru á síðasta ári en er þó sérsniðið að veitingarekstri, sem hefur sætt takmörkunum umfram flestar atvinnugreinar.
Rekstraraðilar veitingastaða sem hafa orðið fyrir minnst 20% tekjufalli í almanaksmánuði frá nóvember 2021 til mars 2022, vegna takmarkana á opnunartíma, geta fengið styrk til að mæta rekstrarkostnaði á tímabilinu. Úrræðið er ekki bundið við fyrirtæki með langa rekstrarsögu, heldur er gert ráð fyrir að veitingastaðir sem opnuðu í fyrra geti notið úrræðisins – að því gefnu að önnur skilyrði laganna séu uppfyllt.
Styrkurinn getur numið allt að 90% af rekstrarkostnaði þess almanaksmánaðar sem umsókn varðar, en hann verður þó ekki hærri en sem nemur tekjufalli rekstraraðila viðkomandi mánuð. Styrkurinn getur jafnframt ekki orðið hærri en 500 þús. kr. fyrir hvert stöðugildi á mánuði á tímabilinu og allt að 2,5 m.kr. á mánuði ef tekjufall var 20-60% en allt að 600 þús.kr. fyrir hvert stöðugildi og allt að 3 m.kr. á mánuði ef tekjufall var meira en 60%. Samanlagðir styrkir til einstakra rekstraraðila vegna tímabilsins alls geta því að hámarki orðið 12,5 til 15 m.kr.
Umsækjendur um styrkina þurfa að uppfylla skilyrði um skattskyldu á Íslandi, lágmarksumsvif, skilvísi á opinberum gjöldum og gögnum til Skattsins og um að vera ekki í gjaldþrotameðferð.
Umsóknar- og ákvörðunarferli vegna styrkjanna verður rafrænt og framkvæmdin er falin Skattinum.
Nýsamþykkt lög byggjast m.a. á góðu samtali fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fulltrúa fyrirtækja í veitingarekstri, en alls hafa fyrirtæki í greininni fengið um 11 milljarða króna í beina styrki frá hinu opinbera vegna faraldursins . Með áframhaldandi stuðningi er markmiðið, eins og áður, að draga úr tjóni, tryggja að neikvæð áhrif á atvinnulíf og efnahag vari sem skemmst og skapa aðstæður fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfarið.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn5 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir er Vínþjónn ársins 2026
-
Markaðurinn6 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Frétt4 dagar síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn2 dagar síðanSérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu
-
Markaðurinn4 dagar síðanSkyrunnendur fá tvær nýjar ástæður til að gleðjast
-
Markaðurinn1 dagur síðanDineout kynnir nýja klippikortalausn fyrir veitingastaði



