Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Uppselt á veitingastaði á matarhátíðinni Restaurant Day

Birting:

þann

Restaurant Day 2013

Á morgun laugardaginn 16. nóvember verður matarhátíðin “Restaurant Day” eða Veitingastaður í einn dag, haldinn í Reykjavík og víða um land – og samtímis um heim allan.

Á Akranesi, Ísafirði og Seyðisfirði
Þrír staðir eru út á landi en það eru Frábærína Franskhildur á Ísafirði þar sem bornir verða fram frábærínu borgarar og heimatilbúnar franskhildur við Mjallargötu.

Á Seyðisfirði verður DJ Unnur Andrea með hádegisverð þar sem úrval smárétta verða á boðstólnum, t.a.m. marineraður fiskur, grænmetisbaka og kjúklingaspjót og svo verða stígin nokkur danspor eftir matinn, en dansinn er ókeypis og maturinn verður ódýr.

Á Akranesi verður sushi-take away staður við Reynigrund 39, en þar ætla þær stöllur Aldís matgæðingur og Stefanía matreiðslunemi á Fiskmarkaðnum í Reykjavík og hefur lært þar sushigerð að bjóða upp á 10 bita sushi bakka og svo partýbakka sem inniheldur 50 bita.

Reykjavík

Two cods Pil-Pil & Bizkaina

Two cods
Pil-Pil & Bizkaina

Í Reykjavík verða 8 staðir sem opna á morgun, t.a.m. í kjallaranum á SPARKI við Klapparstíg verður á boðstólum Melrósate í grænum félagsskap,  við Barónsstíg 16 verður boðið upp á forboðna ávexti og vinsamleg tilmæli til allra að skilja börnin eftir heima þar sem stokkið verður í hyldýpi syndarinnar.

Sumir pop-up veitingastaðir fara alla leið og opna heimasíðu í kringum daginn líkt og Sumendi og býður upp á þrjár máltíðir yfir daginn eða klukkan 13, 18 og 21 og er nú þegar uppselt í kvöldverðinn klukkan 18:00.

Matseðill hjá Sumendi er girnilegur en boðið er upp á:

Garlic soup
With Icelandic lobster tails

One lamb
Roasted Icelandic lamb fillet

Two cods
Pil-Pil & Bizkaina

Three milks
Cooked, fried & cocktail

Og herlegheitin kosta 4.900 krónur.

Hægt er að lesa nánari upplýsingar um veitingastaðina á restaurantday.org með því að smella hér.

 

Auglýsingapláss

Mynd: skjáskot af korti á restaurantday.org

Mynd af þorskrétti: af facebook síðu Sumendi.

/Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið