Viðtöl, örfréttir & frumraun
Sturluð íslensk sviðapizza
Ný pizza hefur litið dagsins ljós hjá Ölverki. Eins og margir hverjir vita þá hefst Þorrinn 21. janúar næstkomandi og að því tilefni ætlar Ölverk í Hveragerði að bjóða upp á sviðapizzu eða eins og staðurinn segir í tilkynningu: sturluð íslensk sviðapizza ala Ölverk.
Hún verður til sölu í afar takmörkuðu upplagi í kringum eða á Bóndadaginn föstudaginn 21.janúar.
Sviðapizzan samanstendur af pizzubotni, rjómaosta-rófustöppu, ferskan mozzarella ost, ruccola, hunangsgljáðum gulrætum, Ölverk bjór (stout) soðinn sviðahaus sem er penslaður með Ölverk Eldtungu Tað BBQ sósu og aukalega BBQ sósa til hliðar við diskinn á aðeins 3150,- krónur.
Mynd: facebook / Ölverk
-
Keppni7 dagar síðanGull hjá Kokkalandsliðinu í Lúxemborg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVerður 90 ára í febrúar og stendur enn vaktina í eldhúsinu
-
Keppni4 dagar síðanKokkalandsliðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum á HM
-
Keppni3 dagar síðanKokkalandsliðið í fjórða sæti á HM
-
Keppni5 dagar síðanFréttavaktin: Kokkalandsliðið mætir í Chef’s Table í dag
-
Keppni6 dagar síðanStór stund fram undan hjá íslenskum barþjónum
-
Frétt7 dagar síðanÍslendingur leiðir áframhaldandi samstarf Alþjóðasamtaka matreiðslumanna
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt hjá Danco! Belgískar flekakökur



