Freisting
Sting mætti með eigin matreiðslumann á veitingastað

Tónlistarmaðurinn Sting hneykslaði starfsfólk á veitingastaðnum Casa Tua á Flórída þegar hann mætti með eigin matreiðslumeistara og krafðist þess að hann sæi um eldamennskuna.
Í breska slúðurblaðinu Sun er haft eftir heimildamanni að Casa Tua sé einn af bestu veitingastöðum Miami og er staðurinn þekktur fyrir góða matreiðslu. Beiðni Sting hafi því komið öllum á óvart. Vinir tónlistarmannsins höfðu hins vegar ekkert á móti eldamennskunni á staðnum heldur var það bara Sting sem var með sér óskir.
Fyrr í vikunni voru Sting og eiginkona hans, Trudie Styler, dæmd til þess að greiða fyrrum matreiðslumanni sínum skaðabætur fyrir að hafa sagt henni upp þar sem hún var barnshafandi.
Greint frá Mbl.is
-
Keppni5 dagar síðanGull hjá Kokkalandsliðinu í Lúxemborg
-
Frétt7 dagar síðanMyglueitur í hveiti: neytendur hvattir til að kanna birgðir sínar
-
Markaðurinn7 dagar síðanSvartir dagar hjá Progastro
-
Keppni6 dagar síðanFréttavaktin: Fylgstu með Kokkalandsliðinu á HM
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVerður 90 ára í febrúar og stendur enn vaktina í eldhúsinu
-
Keppni2 dagar síðanKokkalandsliðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum á HM
-
Keppni3 dagar síðanFréttavaktin: Kokkalandsliðið mætir í Chef’s Table í dag
-
Keppni19 klukkustundir síðanKokkalandsliðið í fjórða sæti á HM


