Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Ostabúðin opnar út á Granda
Jóhann Jónsson, matreiðslumaður, opnaði fyrst Ostabúðina á Skólavörðustíg árið 2000. Þar var boðið upp á áður óséð úrval af ostum og öðru góðgæti, auk þess sem töfraður var fram heitur matur í hádeginu.
Jói bætti svo um betur og opnaði veitingastað við hlið búðarinnar árið 2015.
Sá staður naut mikilla vinsælda og tók á móti fjölda fólks í kvöld- og hádegismat allt til ársins 2019, þegar staðurinn lokaði.
Alhliða veisluþjónusta á granda

Sannkölluð sælkeraveisla hjá veisluþjónustu ostabúðarinnar. Forréttur í matarboðið, en spjarar sig einnig vel sem veislubakki fyrir lengri veislur og samkomur. Inniheldur glæsilegt úrval osta ásamt sérvöldu kjötmeti og broti af því besta úr framleiðslueldhúsi Ostabúðarinnar. Borið fram með heimabökuðu brauði og tilheyrandi dressingum.
Aðdáendur heitreyktu gæsabringunnar þurfa þó ekki að örvænta, þar sem Jói og félagar opnuðu nýja Ostabúð um áramótin s.l. út á Granda og reka þar bæði glæsilegan veislusal og veisluþjónustu. Teymið hefur komið sér upp frábærri aðstöðu á Fiskislóð 26 og framleiðir þar áfram hinar sívinsælu vörur Ostabúðarinnar. Þar má helst nefna grafna og reykta kjötið þeirra, hina frægu heitreyktu gæsabringu, villibráðarpaté, sósur og dressingar.
Veisluþjónusta Ostabúðarinnar er líka á sínum stað. Eins og áður er boðið upp á fjölbreyttar veitingar í veislur af öllu tagi, osta- og kjötbakka, snittur, spjót, hátíðarveislur, villibráðarveislur og svo mætti lengi telja.
Funda- og veislusalur Ostabúðarinnar við Fiskislóð er með glæsilegasta móti og tekur um 100 manns í sæti eða 140 manns í standandi veislu. Hægt er að leigja salinn undir hvers kyns viðburðir og veisluhöld, svo sem fermingar, árshátíðir, stórafmæli, jólahlaðborð, brúðkaup o.fl. Einnig er boðið upp á þá þjónustu að fá veislumat sendan í heimahús eða aðra sali.
Fyrirtækjaþjónusta — heitur matur í hádeginu
Að lokum má nefna fyrirtækjaþjónustu Ostabúðarinnar, en hún framreiðir heitan mat í hádeginu úr fersku og góðu hráefni og sendir til fyrirtækja ásamt því að bjóða upp á hádegishlaðborð á virkum dögum. Athugið að lokað er inn í matsal vegna óvissu sem nú ríkir vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar. Vegna þessa þá býður staðurinn upp á tilbúin kvöldmat sem sent er til viðskiptavina. Dýrindis matur að hætti Ostabúðarinnar sem einungis þarf að hita í ofni.

Osabúðin hefur sett saman þessa dýrindis öskju sem þau kalla „Sóttkvíar sælkerinn“.
karfan inniheldur eftirfarandi:
Heitreykt Gæsabringa.
Grafið Ærfillet.
Villibráðarpate.
3 tegundir af íslenskum Dala osti.
Spænsk Serrano hráskinka.
Ástrík sælkerapopp.
Omnom súkkulaði.
Carr´s kex.
Hindberjavinagretta.
Púrtvínsrærð rifsberjagel.
Basilolía með kasjúhnetum og capers.
Ólífur.
Þessi dýrindis askja er á sértilboði á 9.900kr. út apríl 2020.
Myndir: facebook / Ostabúðin
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn7 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju












