Frétt
Óbreytt klukka á Íslandi
Klukkan á Íslandi verður óbreytt eftir ítarlega skoðun á kostum og göllum þess að seinka henni um klukkustund. Niðurstaða ríkisstjórnarinnar er að skoðun á því hvort færa ætti staðartíma nær sólartíma á Íslandi hafi ekki leitt fram nægilega sterk rök til að réttlæta þá miklu breytingu sem felst í því að seinka klukkunni um eina klukkustund. Vegur þar þyngst að neikvæð áhrif fækkunar birtustunda á vökutíma og skerðingar birtustunda í lok dags sem dregið gætu úr útivist og hreyfingu eru ekki nægilega vel þekkt, en birtustundum hefði fækkað um 13% á ársgrundvelli með breytingunni.
Ríkisstjórnin telur að mikilvægt sé að leita leiða til að bregðast við áhrifum sem misræmi staðartíma og líkamsklukku getur haft í för með sér og ákvað að fela heilbrigðisráðherra að ráðast í fræðsluátak um mikilvægi svefns og gera kannanir á svefntíma landsmanna fyrir og eftir átakið í samstarfi við embætti landlæknis. Enn fremur var mennta- og menningarmálaráðherra falið að taka saman þau verkefni þar sem upphafi skóladags hefur verið frestað, leggja mat á þau og ráðast í frekari tilraunaverkefni þar sem fylgst verði með svefntíma barna og unglinga fyrir og eftir breytingu til að mæla árangur.
Málið hefur verið til umfjöllunar í Stjórnarráðinu í rúm tvö ár og meðal annars lagt fyrir almenning í samráðsgátt stjórnvalda en þátttaka varð umtalsverð. Þá funduðu fulltrúar forsætisráðuneytisins með fjölda umsagnaraðila og sérfræðinga.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum




