Uppskriftir
Kókostoppar
360 gr egg
360 gr sykur
360 gr kókosmjöl, fínmalað
100 gr súkkulaði, grófrifið
100 gr búðingsduft (Royal, vanilla)
rifinn börkur af 1 appelsínu
Hitið ofninn í 220° C. Öllum efnunum í deigið blandað vel saman og deiginu sprautað á plötu í gegnum slétta túðu.
Topparnir eru hafðir nokkuð stórir, annars verða þeir ekki mjúkir að innan. Bakaðir í 10 – 12 mínútur.
Toppana má ekki baka löngu fyrir jól, því þá harðna þeir og eru ekki eins og þeir eiga að vera. Einnig er mikilvægt að geyma þá í loftþéttu íláti.
Höfundur: Smári Stefánsson bakarameistari
Mynd: úr safni
-
Markaðurinn5 dagar síðanLaufey og Collab vinna alþjóðleg verðlaun fyrir bestu markaðsherferðina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFullt hús og mikil stemning á afmælishátíð Café Riis
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanEin lélegasta vínuppskera í þrjá áratugi
-
Markaðurinn5 dagar síðanBeittir Hnífar sameinast nýju fyrirtæki – Glóðin veitingavörur tekur til starfa
-
Markaðurinn5 dagar síðanKomið víða við í heimsókn KAI til Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÁhugaverð grein um fagmennsku í veitingarekstri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEin máltíð sem breytti öllu
-
Markaðurinn2 dagar síðanBakarameistari Bakels heimsækir Ísland og heldur bakaranámskeið



