KM
Keppnin um matreiðslumann ársins
Stjórn Klúbbs matreiðslumeistara hefur ákveðið að færa keppnina um matreiðslumann ársins yfir á haustið í stað seinnipart vetrar eins og verið hefur í mörg ár. Nokkrar ástæður liggja að baki þessari ákvörðun. Haustið hentar mjög vel vegna árstíðabundins framboðs af hráefni og þá stemmir hún betur við sýninguna á Akureyri þar sem keppnin fer fram annað hvert ár. Einnig hefur sýningin í Smáranum breyst úr matarsýningu í ferða- og golfsýningu og hentar því ekki lengur að vera með matreiðslukeppni þar inni.
Framkvæmdanefnd um keppnina matreiðslumaður ársins hefur ákveðið að keppnin verði haldin á bilinu 10. sept -15. okt og verður keppt með leyndarkörfu úr haustmat. Staðsetning og nánara fyrirkomulag verður kynnt síðar.
Fyrir hönd stjórnar Klúbbs matreiðslumeistara
Ingvar Sigurðsson
Forseti
-
Markaðurinn7 dagar síðanMyndir: Vel heppnað bakaranámskeið á vegum Bakels
-
Markaðurinn6 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Kunsang Tsering Tamang með spennandi námskeið í Ramen-gerð hjá Iðunni fræðslusetri
-
Markaðurinn6 dagar síðanSvane – Hreinlæti með umhverfið í huga
-
Keppni4 dagar síðanGull hjá Kokkalandsliðinu í Lúxemborg
-
Frétt6 dagar síðanMyglueitur í hveiti: neytendur hvattir til að kanna birgðir sínar
-
Markaðurinn6 dagar síðanSvartir dagar hjá Progastro
-
Keppni5 dagar síðanFréttavaktin: Fylgstu með Kokkalandsliðinu á HM
-
Keppni16 klukkustundir síðanKokkalandsliðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum á HM


