Sverrir Halldórsson
Jóladýrð í hátíðarsal Hilton
Við félagarnir áttum þess kost að fara á jólahlaðborð á Hilton Reykjavik Nordica hótelinu, síðastliðið föstudagskvöld.
Er við komum á staðinn var hægt að fara í fordrykk á barnum eða fara inn í nýja salinn sem er til vinstri þegar komið er inn í forrýmið á stóra salnum, en í sjálfu forrýminu var hlaðborðið staðsett. Fyrst skal segja að þeir höfðu deilt borðinu upp í einar 6 – 7 stöðvar, hver stöð var ferningur og hver hlið var sjálfstæð þannig að það var eins og 4 borðum væri skellt saman, mjög skynsamlegt þar sem nóg er plássið og þá var hægt að hafa bara borð og stóla inn í salnum.
Svo var okkur vísað til borðs og pöntun tekin á Malt og appelsín „eina könnu takk“. Svo var farið í borðið og fyrst fékk ég mér reyktan lax, graflax, síld, sjávarréttarpaté og kavíar með meðlæti.
Laxinn hvannarrótargrafinn mjög góður, reykti laxinn frá Ólafsfirði finnst mér sá besti á landinu, karrýsíldin og bláberjasíldin voru svona lala en hátíðarsíldin mjög góð, pateið var ósköp hlutlaust, kavíarinn með blini, lauk, capers og sýrðum rjóma, var gott og gaman að sjá það aftur á hlaðborði.
Svo var farið í Hreindýrapate, grafnar gæsabringur, tvíreykt hangikjöt og kalkún.
Hreindýrapateið var þrælgott, sama um gæsabringurnar, hangikjötið var gott og flott reykbragð, kalkúnninn kaldur og ekkert spes.
Þá var farið í heita matinn og valdi ég lambalærið með meðlæti og Bearnaisesósu. Hélt ég svo inn í sal, settist við borðið og horfði á diskinn, bearnaissósan var horfin en við hliðina á kjötinu var smá pollur og bragðaðist hann eins og Bearnaisesósa, þarna er hlutur á ferð sem ég átti síst von á á Hilton, en það var verið að nota froðu en ekki sósu. Að öðru leiti bara þokkalegt.
Þá var komið að ábætinum og fékk ég mér riz a´la amande, creme brulee og smákökur.
Rísinn var sá besti sem ég hef fengið í nokkur ár, en sá sem lagaði hann hefur sennilega maukað grjónin því þau fundust ekki, creme brulee klassískt og gott, smákökurnar voru með sál og mjög góðar.
Þegar upp er staðið, þá var þessi uppsetning þeirra á hlaðborðinu alveg brilliant það var aldrei röð, þetta flaut rólega í gegnum kvöldið, frábært.
Heilt yfir var maturinn mjög góður og girnilegur og ánægjulegt að sitja í salnum og borða góðan mat við söng og lifandi músik, eina að hún var það hástemt að það var varla hægt að tala saman við borðið.
Það voru tveir félagar sem gengu út í myrkrið saddir og sælir þetta kvöld.
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Rótgróið bakarí / verslun og kaffihús til sölu eða leigu
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Frakkar sigruðu Bocuse d’Or 2025 – Sindri Guðbrandur í 8. sæti
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sjáðu keppnisrétti Sindra hér – Myndir
-
Starfsmannavelta2 dagar síðan
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir ráðin yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri Guðbrandur hóf keppni í Bocuse d´Or í morgun – Bein útsending
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Glæsilegt Þorrablót Íslendinga á Gran Canaria – Kristján Frederiksen matreiðslmeistari fór á kostum – Myndir
-
Keppni1 dagur síðan
Ashley Marriot vann Barlady keppnina á Íslandi – Myndir
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðan
Er Guinness 0 algjörlega áfengislaus?