Markaðurinn
Frönsk búsáhaldabylting í Ormsson
Ormsson hefur á síðustu mánuðum hafið sölu á búsáhöldum frá tveimur frönskum fyrirtækjum, Staub og de Buyer.
Bæði þekkt um allan heim fyrir framleiðslu sína og gæði.
Staub hefur verið leiðandi í hönnun og framleiðslu áhalda úr steypujárni í yfir 40 ár og þar má helst nefna Cocotte steypujárnspottana sem eru þekktir fyrir að geyma varma einstaklega vel og dreifa honum jafnt yfir matinn. Litlar hæðir í lokinu sjá síðan til þess að safinn dropar aftur yfir matinn.
Grillpönnurnar frá Staub er önnur vara sem slegið hefur í gegn enda úr mjög vönduðu steypujárni.
Rifflunar í pönnunum eru sérstaklega háar sem verður til þess að maturinn liggur ekki í fitunni, grillförin verða fallegri og bragðið ákveðnara. Það er ekki af ástæðulausu að „America‘s Test Kitchen“ valdi amerísku grillpönnurnar frá Staub þær bestu.
Nýjasta vörumerkið í Ormsson, de Buyer. Á sér langa sögu, var stofnað árið 1830 í Frakklandi og hefur síðan þá framleitt hágæða potta og pönnur fyrir atvinnumenn í eldhúsinu.
Á síðustu árum hefur vöruvalið breikkað og inniheldur nú fjölbreytt úrval áhalda fyrir bakstur og eldun.
Mineral B járnpönnurnar frá de Buyer hafa tekið litlum breytingum frá upphafsdögum fyrirtækisins enda ekki alltaf þörf á að breyta því sem virkar vel.
Pönnurnar eru ekki bara framleiddar á umhverfisvænan hátt heldur eru þær einnig úr 100% náttúrlegum efnum, 99% úr járni án allra aukaefna og húðunar eins og PFAO og PTFE.
Náttúrulegir „non-stick“ eiginleikar aukast við notkun pönnunar og þar sem þær eru algjörlega úr járni, ráða þær við mjög mikinn hita og loka matnum fljótt.
Af öðrum vinsælum vörum frá de Buyer má efna mandólín til að skera grænmeti og ávexti sem og Le Tube bökunarsprautuna sem ræður við allt að 100°C heitar blöndur og sprautar alltaf sama valda magninu í hvert skipti.
Frekari upplýsingar um Staub og de Buyer má nálgast á heimasíðu Ormsson www.ormsson.is, og hjá Óskari Hrafnkelssyni í síma 530-2844 eða með tölvupósti í [email protected].
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Markaðurinn5 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði
-
Frétt2 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax







