Vín, drykkir og keppni
Falsað Bordeaux-vín í umferð
Nú á dögunum handtók lögreglan í Frakklandi meira en 20 manns sem grunaðir eru um að selja hundruð þúsunda lítra af ódýru rauðvíni, markaðssett sem Bordeaux.
Ríkissaksóknari Bordeaux, Frédérique Porterie, sagði að svindlið hafi átt sér stað í matvöruverslunum í Frakklandi og öðrum löndum, þar sem vínið hafi verið afgreitt sem Bordeaux-flöskur. Þrír hinna handteknu hafa verið ákærðir fyrir skipulögð svik, glæp sem varðar hámarksfangelsi í tíu ár, að því er fram kemur á vefnum lefigaro.fr.
Glæpagengið keypti ódýrt vín frá Spáni og öðrum héruðum Frakklands og merktu flöskurnar með Bordeaux miðum í skjóli nætur. Víninu var síðan dreift og selt til kaupenda, þar á meðal matvörubúða.
Það var algjör tilviljun að upp komst um svindlið, en franska lögreglan var í miðri rannsókn á eiturlyfjasmygli, þegar hún fann falsaða merkimiða í september síðastliðnum. Síðan, í október, sáust fölsuð Bordeaux-vín í vesturhluta Frakklands, sem leiddi til þess að Bordeaux lögreglan hóf átta mánaða langa rannsókn sem náði hámarki með handtökunum sem gerðar voru í síðustu viku.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMyndasafn: Stóreldhúsið 2026 vel sótt í Laugardalshöll
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhússvið Danól verður Vistró
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Keppni7 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Áhugavert3 dagar síðanÞrír sólarhringar í Nuuk
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanArnór Ingi og fjölskylda opna Laut í Norræna húsinu – sjáðu matseðilinn hér
-
Keppni7 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Frétt4 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar




