Uppskriftir
Engiferkökur
500 g púðursykur
250 g smjörlíki
2egg
500 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. natron
1/2 tsk. engifer
1/4 tsk. negull
1/4 tsk. kanill
Aðferð:
Allt hráefnið er sett saman í skál og hnoðað vel. Það er auðveldara að vinna smákökurnar ef smjörlíkið er mjúkt, sérstaklega ef það er hnoðað í höndunum.
Deigið er síðan mótað í nokkrar rúllur og kælt í 3-4 klst.
Takið rúllurnar úr kælinum og skerið í 1/2 sm þykkar sneiðar sem eru settar á smurða bökunarplötu eða á smjörpappír. Kökurnar bakast við 180°C í 8-12 mínútur (fer eftir ofntegundum og hvort um blásturofna sé að ræða).
Höfundur er Guðni Hólm, bakari
-
Keppni5 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhússvið Danól verður Vistró
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMyndasafn: Stóreldhúsið 2026 vel sótt í Laugardalshöll
-
Keppni5 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar
-
Frétt2 dagar síðanVanilludropar Bónuss teknir úr sölu




