Markaðurinn
„Íslenskt lambakjöt“ fær upprunavottun
Evrópusambandið hefur nýlega samþykkt umsókn Icelandic lamb um að vörumerkið „Íslenskt lambakjöt“ verði upprunavottað – en það er fyrsta íslenska landbúnaðarafurðin til að hljóta slíka vottun.
Um er að ræða vottun með tilvísun til uppruna, eða „Protected Designation Of Origin“ (PDO), og fær íslenskt lambakjöt nú að bera merki vottunarinnar í markaðssetningu, en það á að stuðla að neytendavernd, auka virði afurða og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti.
„Íslenskt lambakjöt“, eða enska vörumerkið „Icelandic lamb“, mun þannig standa fyrir lambakjöt af hreinræktuðum íslenskum lömbum, sem eru alin og slátrað á Íslandi.
Matvælastofnun samþykkti umsókn Markaðsráðs kindakjöts í byrjun árs 2018, um að „Íslenskt lambakjöt“ yrði verndað afurðaheiti, sem er nauðsynlegt skref í átt að evrópsku vottuninni. Varð vörumerkið þar með fyrsta íslenska landbúnaðarafurðin til að hljóta slíka vernd á Íslandi. Síðan fékk íslenska lopapeysan slíka vernd og hjá Matvælastofnun liggur nú umsókn um vernd fyrir íslenskt viskí.
Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri Íslensks lambakjöts, segir að Markaðsstofan Íslenskt lambakjöt hafi unnið að því undanfarin ár að fá íslenska lambakjötið skráð sem verndað afurðaheiti á Evrópumarkaði undir PDOmerkingunni, með það fyrir augum að auka virði íslenska lambakjötsins.
„Ég er ekki í nokkrum vafa um að PDOmerking muni auka virði íslenska lambakjötsins, bæði á innanlandsmarkaði og erlendis. Reynsla Evrópuþjóða hefur sýnt að vörur sem hafa PDOmerkingu seljast að meðaltali á tvöföldu útsöluverði í löndum ESB, samanborið við staðgönguvörur. Merkingarnar bæta einfaldlega samningsstöðu bænda og framleiðenda verulega í Evrópusambandinu.
Þá hafa kannanir á innanlandsmarkaði mælt að evrópsk upprunavottun geti hækkað kaup- og greiðsluvilja íslenskra neytenda umtalsvert,“
segir Hafliði.
Birtist fyrst á bbl.is 27. mars 2023
Myndir: bbl.is
-
Starfsmannavelta6 dagar síðan„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun
-
Markaðurinn7 dagar síðanNýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanDuck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík
-
Keppni6 dagar síðanAuddi Blö og Steindi Jr. verða kynnar á úrslitakvöldi Tipsý Bar
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Að gefast aldrei upp“, segir Sædís Hui í Bocuse d’Or teyminu
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt hjá Garra: Mabrúka, handgerð krydd frá Túnis
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý Cellini kaffihylki – Ítölsk kaffimenning í hverjum bolla
-
Markaðurinn7 dagar síðanÞarf alltaf að kaupa nýtt?






