Markaðurinn
Nýir eigendur á Eðalfiski
Brimilshólmi frá Akranesi hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé Eðalfiskur ehf. og tekið við rekstri félagsins.
Eðalfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á úrvals ferskum, frystum, reyktum og gröfnum laxaafurðum þar sem stór hluti afurða fyrirtækisins er seldur á erlendum mörkuðum. Jafnframt eru þessar afurðir vinsælar á innanlandsmarkaði ásamt reyktum silungi, reyktri Egilssíld og Eðal graflaxsósu.
„Á bak við Brimilshólma, sem kaupir Eðalfisk, er öflugur hópur sem er að veðja á framtíðarsýn til sóknar á erlendum markaði og við höfum mikla trú á tækifærum á innanlandsmarkaði. Við sjáum tækifæri hollu mataræði og aukinni fiskneyslu og viljum styðja við viðskiptavini okkar og skapa þeim virði í sinni starfsemi. Þetta er sami hópur og kom að kaupum á Norðanfiski ehf. á síðasta ári sem er líka traust og gott félag sem þjónustar stóreldhús, verslanir og veitingastaði á innanlandsmarkaði. Ég vil þakka eigendum Eðalfisks fyrir faglega vinnu í þessu söluferli.“
segir Inga Ósk Jónsdóttir fyrir hönd Brimilshólma.
„Rekstur Eðalfisks á sér langa og farsæla sögu í Borgarnesi sem við erum stolt af og við fögnum því að kaupendur séu öflugur hópur og höfum við fulla trú að félagið muni halda áfram að vaxa og dafna með nýjum eigendum.“
segir Kristján Rafn Sigurðsson framkvæmdastjóri og einn núverandi eigenda Eðalfisks.
Ráðgjafar kaupenda í ferlinu voru KPMG og Benedikt Bogason hjá Nordik Legal og fyrir hönd seljanda Kjartan Jónsson og Ólafur Steinarsson.
Mynd: aðsend
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður með norræna matargerð opnar í Norræna húsinu
-
Markaðurinn5 dagar síðanLandsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur
-
Markaðurinn5 dagar síðanInnnes kynnir nýtt jógúrt frá Frischli
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanHelliskaffi opnað í Hellisgerði með metnaðarfullar hugmyndir
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFrá síldartunnum til viskítunna
-
Markaðurinn4 dagar síðanLangar þig að læra að tína villta sveppi?
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanC.V.N.E. valið evrópski framleiðandi ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMyndband: Stærsta hlaðborð Bandaríkjanna er í litlum sveitabæ í Pennsylvaníu



