Veitingarýni
Krua Siam – Veitingarýni
Veitingahúsið Krua Siam sem staðsett er í hjarta Akureyrar, á mótum Glerárgötu og Strandgötu eða n.t. við Strandgötu 13 býður upp á tælenskan mat. Krua Siam þýðir „tælenskt eldhús“, en Tæland hét Siam fram að árinu 1939.
Vorum mætt snemma, klukkan 18:00, starfsfólkið var fram í sal að borða og öll hlupu þau inn í eldhús þegar þau sáu okkur koma. Einn þjónninn kom strax aftur fram með bros á vör og tók virkilega vel á móti okkur, kurteis með afbrigðum, vísaði okkur til sætis og afhenti matseðlana.
Tæpir 100 réttir eru á matseðlinum, forréttir, fisk-, kjúklinga, svínakjöts-, nautakjöts-, lambakjöts réttir. Sérstakur dálkur var á matseðlinum þar sem sterkir réttir voru í boði, súpur, grænmetis og núðluréttir og að lokum barnaréttir.
Við vorum fjögur að borða og eftir miklar pælingar, þá var ákveðið að fara í tveggja rétta set menu. Í forrétt voru djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu og fjórir aðalréttir, kjúklingur í massaman karrý, steikt lambakjöt með papríku, lauk og sveppum, Pla sam lod steiktur fiskur í sætri chilli sósu og Nautakjöt í ostrusósu með grænmeti. Með þessu voru borin fram hrísgrjón.
Fljót og góð afgreiðsla og maturinn kominn á borðið nokkrum mínútum seinna. Allir réttir voru settir á miðju borðsins við deildum síðan réttum á milli okkar.
Mikill matur og nú var pressa framundan, þ.e. að reita ekki „Hrísgrjónaguðinn“ til reiði, sem er kvenkyns, en sagt er að hún vill tryggja að allir hafi nóg að borða og ekki megi leifa matnum. Ef hún er ekki sátt þá getur það kallað hungursneyð yfir þjóðina, (sel það ekki dýrara en ég keypti það).
Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu
„Þessar klassísku djúpsteiktar rækjur, stökkt og gott, vantaði reyndar meiri dýpt í súrsætu sósuna.“
Pla sam lod steiktur fiskur í sætri chilli sósu
„Pla sam lod er klassískur réttur í Tælandi, oftast notaður flatfiskur, virkilega góður réttur, rífur þokkalega í, en bragðgóður.“
Kjúklingur í massaman karrý
„Virkilega góður réttur, kjúklingurinn bráðnaði í munni og Massaman karrýsósan alveg frábær. Massaman er karrý sem er viðbætt með cilantro fræjum, lemongrass, galangal sem er jurt af engiferætt, hvítum pipar, rækju paste, shallot lauk og hvítlauk.“
Steikt lambakjöt með papríku, lauk og sveppum
„Íslenska lambakjötið alltaf jafngott, ferskt grænmeti kærkomið en ekki frosið eins og margir asíu staðir bjóða upp á. Yfir heildina bragðgóður réttur.“
Nautakjöt í ostrusósu með grænmeti
„Virkilega góður réttur, klassísk ostrusósa, en til fróðleiks þá var ostrusósan fyrst fundin upp árið 1888 og er sambland af ostryseyði og fiskisósu.“
Við náðum að klára matinn, sæl og glöð. Mælum klárlega með Krua Siam.
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðan
Opnuðu 18 L kampavínsflösku í fyrsta sinn á Íslandi – Nýir eigendur Kampavínsfjelagsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Gulli bakari heiðraður sem kaupmaður ársins 2024
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðan
Mikil aukning á fölsuðu áfengi – IBA biðlar til allra barþjóna og veitingamenn að vera vel á verði
-
Uppskriftir5 dagar síðan
Ljúffengar og góðar fiskibollur
-
Keppni10 klukkustundir síðan
Myndir og vídeó frá matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana – Sjáið úrslitin hér
-
Frétt4 dagar síðan
Upplýsingar til rekstraraðila í kringum Austurvöllinn
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Beittir hnífar: Svartur föstudagur – Viku tilboð
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Áramótabomba Churchill