Markaðurinn
Traustar og vandaðar framreiðsluvörur
Ásbjörn Ólafsson ehf.
Þýska fjölskyldufyrirtækið APS var stofnað árið 1933 og sérhæfir sig í framleiðslu á hágæða vörum fyrir veitingarekstur. Vörumerkið þróar fallegar og hagnýtar vörur í samráði við hönnuði og fagfólk í veitingageiranum ásamt því að leggja áherslu á stöðugar umbætur, félagslega ábyrgð og sjálfbærar vinnuaðferðir.
Vörurnar eru að stórum hluta framleiddar í Þýskalandi og aðlagaðar að þörfum viðskiptavina. APS framleiða meðal annars vörur fyrir hlaðborð af ýmsu tagi og matarútstillingar, borðbúnað, matreiðslu- og framreiðsluvörur auk hlífa og fylgihluta af ýmsu tagi sem bæta notkunargildi búnaðarins og geymslu matvæla. APS vörurnar henta því sérstaklega vel fyrir mötuneyti, hótelveitingastaði og kaffihús svo dæmi séu tekin.
APS leggur áherslu á að vörurnar séu hagnýtar, endingargóðar og stílhreinar ásamt því að þær uppfylli þarfir fagfólks í matvæla- og þjónustugeiranum. APS vörurnar fást hjá Ásbirni, á asbjorn.is.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt5 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Markaðurinn4 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn4 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni21 klukkustund síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun45 minutes síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu







