Vertu memm

Pistlar

Villta vestrið í áfengisölu eða er þetta framtíðin?

Birting:

þann

Stefán Guðjónsson framreiðslumeistari

Stefán Guðjónsson

Áður en ég byrja að skrifa um hvort vínvefverslun eigi að vera lögleg eða ekki, vil ég taka skýrt fram að ég er með litla vínvefverslun sjálfur, og er ekki að þykjast vera hlutlaus.

Aftur á móti í þessari grein vil ég ræða um kosti og galla fyrir minni aðila eins og mig við fyrirkomulag hjá ÁTVR, vínvefverslun, og almennt frjálsa vín sölu. Við skulum byrja með:

Á að leggja niður ÁTVR?

Mitt svar er nei, það er ekki tímabært akkúrat núna. En ÁTVR verður að aðlaga sig að nútímanum. Síðan ég kom heim frá Bandaríkjunum fyrir mörgum árum síðan hefur ríkið eins og við þekkjum það, breyst gríðarlega mikið. Í þá daga var bjór ekki leyfður, okkur almúganum var einfaldlega ekki treystandi. Fullyrt var að við myndum liggja full dag og nótt. Svo þegar bjórsala var leyfð var upphaflega ekki hægt að kaupa nema í kippum.

Svo vildi yfirmaður ÁTVR ekki leyfa áfengt gos, ég þekki það vegna þess að ég spurði Höskuld sjálfur, hann hélt því fram að það væri of líkt gosi og myndi þannig hvetja unglinga til að drekka meira. Þetta er bara brot af því sem mátti ekki gera í gegnum árin, en sem betur fer hefur það breyst og landið er ennþá í lagi og við almúginn sitjum ekki að sumbli dag og nótt.

ÁTVR eins og það er rekið í dag hefur gríðarlega metnaðarfullt fólk, bæði frammi í sal og á skrifstofunni, og þess er krafist að starfsfólkið læri mjög mikið um vín, bjór og annað sem er selt í búðunum. Mér finnst þau eiga hrós skilið fyrir að leggja svona mikla áherslu á menntun hjá starfsfólkinu.

Þegar vínsölu verður breytt, get ég lofað að engin stórverslun verður með eins vel menntað starfsfólk og ÁTVR, hvorki í léttvíni, bjór né öðru. En á sama tíma, má starfsfólk ekki halda úti sínu eigin bloggi eða vefsíðu sem fjallar um vín, má ekki halda vín námskeið fyrir almenning og má ekki fara á vín kynningu hjá aðilum sem eru með vín í sölu hjá ÁTVR nema hún sé haldin á vegum ÁTVR.

Það er því minni hvati fyrir starfsfólk að mennta sig meira að mínu mati.

En ÁTVR er hlutlaust að minnsta kosti, er það ekki?

Já og nei. Ég ætla að útskýra ferlið við að koma víni á reynslu listann.

Fyrst þarf fyrirtæki að koma með prufur af víninu og vöruvottun, og greiða 33.000 kr. fyrir hvert vín sem þau sækja um í reynslulistanum, og svo kemst vínið í sölu eftir sex til átta mánuði. Ef vínið nær ekki lágmarks sölu dettur það úr reynslulistanum og þú þarf að taka til baka óselt vín og endurgreiða andvirði vínanna sem var skilað.

Talið er að 80% af víni á reynslulistanum nái ekki sölu lágmarkinu í fyrstu 3 til 4 tilraunum, sem þýðir að umboðsaðili er búinn að eyða 99.000 kr. eða meira til að komast inn í ÁTVR með eitt vín! Ég er með 9 vín sem ég setti á reynslulistann, og ég reikna með að 1 til 2 þeirra komist í kjarna í fyrstu tilraun EF ég er heppinn.

En þetta er mun auðveldara fyrir stærri umboðsaðila, t.d. ef ég sé að það þarf að selja 50 flöskur af ákveðinni tegund af víni sem er í reynslu sölu hef ég val, kaupa það sjálfur eða láta það detta út. Ég sem lítill aðili hef ekki efni á að kaupa þetta magn til baka, og sitja með það í vöruhúsi sem ég þarf að borga leigu fyrir, og með engan stað til að kynna vínin, og þarf að bíða í nokkra mánuði í viðbót til að borga aftur 33.000 kr. svo vínið komist aftur í reynslusölu, sem er yfirleitt 4-8 mánaða bið!

Stórir vín innflutningsaðilar lenda yfirleitt ekki í að gera þetta aftur. Algengt er að ef þeir sjá að það vantar herslumun upp á að vínið komist í kjarnann, þá kaupa þeir sjálfir nóg til að halda víninu í kjarna. Vínið er svo endurselt til ÁTVR eða selt til veitingahúsa með vægu skammtíma tapi. Þarna sést að á meðan vínið mitt situr og safnar ryki í vöruhúsi á meðan ég býð eftir að komast aftur í reynslu, þá geta stóru fyrirtækin keypt sig inn í kjarnann sökum fjárhagsstöðu.

Svo er algengt að sjá vín sem var langt í frá að komast í gegnum reynslusölu, eða er að detta út úr kjarna, vera boðin til veitingahúsa á lægra verði til að losna við lagerinn.

Hvernig myndi vínvefverslun hjálpa minni aðilum?

Fyrst skulum við vera raunsæ, ástæðan fyrir því að meðalstórir vínumboðsaðilar eru logandi hræddir við að leyfa vínvefverslun er vegna þess að þeir vita að þeir fá takmarkað eða jafnvel lítið pláss á vefsíðum stóru keðjanna. Stóru verslanirnar eru annað hvort komnar með vínumboð nú þegar eins og Hagar eru með, eða eru í startholunum.

Meðalstórum aðilum eða litlum aðila eins og mér verður ekki boðið að vera með, þetta er bara staðreynd. Fyrir utan sínar eigin vörur verður að öllum líkindum bara stærstu vín- og bjór umboðsaðilum boðið að vera með hjá stórverslununum. Hagar eru nú þegar að flytja inn og selja í ÁTVR talsvert margar tegundir af léttvíni og bjór.

Þetta eru skiljanlegar áhyggjur fyrir marga umboðsaðila.

Af hverju vil ég þá leyfa vínvefverslun?

Mjög einfalt, það er eini staðurinn sem ég hef til að kynna vínið mitt, og satt að segja eru þó nokkrir litlir aðilar sem hafa engan annan stað til að kynna sína vöru. Í vínvefversluninni get ég notað mína þekkingu og sérstöðu til að kynna vöruna frá mér og öðrum minni aðilum sem hafa engan annan stað til að kynna. Ekki getum við auglýst í blöðum eða sjónvarpi hérlendis þar sem lög leyfa það ekki (það er efni í sér grein út af fyrir sig).

Ekki getum við kynnt okkar vöru í veitingahúsum vegna þess að um 70% af víni sem selt er í veitingahúsum er frá 2 aðilum, og veitingahúsin eru samningsbundin þeim (raunveruleikinn bakvið þetta væri efni í góða grein líka). Hin 30% af sölunni er slegist um og hægt er að segja að 4 meðal stórir aðilar eigi stærstan part af sölunni þar.

Að vera með vínvefverslun gefur mér og öðrum innflutningsaðilum tækifæri á að kynna og selja okkar vöru og gefur okkur tækifæri á að standa betur jafnfætis stærri aðilum sem eru meðal annars að rúlla yfir okkur í ÁTVR vegna stærðar þeirra. Að minnsta kosti höfum við loksins tækifæri til að keppa við þá.

Verð ég ríkur á að vera með vín vefverslun? Nei, en það gerir mér kleift að bjóða upp á gæðavöru og kynna þær með námskeiðahaldi og fyrirlestrum.

Höfundur þessarar greinar Stefán Guðjónsson er framreiðslumeistari og vínþjónn með 40 ára reynslu í veitingahúsum og vel þekktur fyrir vínþekkingu sína á Íslandi og meðal annars skrifað um vín í blöðum og á vefnum. Hægt er að hafa samband við hann á [email protected]

Viltu birta grein á Veitingageirinn.is? Sendu okkur póst [email protected]. Með pistlinum þarf að fylgja nafn höfundar, titill og mynd.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið