Frétt
Er sértæk matarhefð á þínu svæði?
Markaðsstofa Suðurlands leita eftir áhugaverðum staðreyndum og skemmtilegum sögum um matarhefðir og venjum á Suðurlandi, hvort sem þær tengjast fornri tíð eða eru nýstárlegri og enn við lýði. Sögurnar munu nýtast við markaðssetningu sunnlenskra matvæla og veita innblástur í vöruþróun fyrir veitingastaði og matvælaframleiðendur.
Matarhefðir eru mikilvægur hluti af ímynd okkar, tengjast sögu okkar, menningu, veðurfari og því landslagi sem Íslendingar hafa búið við um aldanna rás. Þróun og breytingar eru af hinu góða en það er einnig mikilvægt að varðveita þekkinguna og hefðir. Við getum öll tilgreint þjóðlega íslenska rétti en það getur verið erfiðara að benda á svæðisbundna rétti og matarhefðir.
Suðurlandið er stórt og fjölbreytt landsvæði þar sem má finna svæði þar sem hefðir og venjur sem ekki finnast annarsstaðar á landinu. Sem dæmi var kúmen notað í rabbarabarasultu í Fljótshlíð á tyllidögum og fýllinn er enn borðaður undir Eyjafjöllum og í Mýrdal.
Sögurnar má senda á [email protected] fyrir 5. júní.
Þrír heppnir verða dregnir út og fá gjafabréf frá sunnlenskum veitingastöðum.
Þriggja rétta máltíð fyrir tvo á Pakkhúsinu á Höfn
Rifið lamb og bjór fyrir tvo hjá Midgard Base Camp á Hvolsvelli
Gjafaaskja frá Friðheimum með grillsósu, gúrkusalsa og grænni tómatsultu.
Mynd: south.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni5 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




