Markaðurinn
Björk og Birkir Kokteilseðill
Björk og Birkir eru, eins og flestir vita einstök vara sem unnin er úr íslenskum birkisafa og hver flaska inniheldur birkigrein sem gerir vöruna sérstaklega aðlaðandi og skemmtilega.
Við gerðum
þennan bækling með það í huga að með þessu móti kæmum við Björk & Birki í víðari dreifingu þar sem barir og veitingastaðir hefðu þá nokkurskonar “biblíu” til að fletta í ef það vantaði hugmyndir að góðum kokteil gerðum úr Björk & Birki. Við fengum nokkra mjög svo góða blöndunga ( Mixologist ) til að setja inn sínar uppskriftir á Björk og Birki hanastélum sem reynst hafa vel á veitingastöðunum.
Eftirspurn eftir vörunni hefur aukist gríðarlega á fyrri helmingi þessa árs og þá sérstaklega frá erlendum ferðamönnum. Ferðamaðurinn gerir orðið kröfu á að fá íslenska vöru þegar að hann pantar sér drykk hér á landi og er kokteilbæklingurinn hugsaður til að koma á móts við þá kröfu og einnig til að kynna vöruna betur Íslendingum. Við viljum sýna fram á þá fjölmörgu notkunarmöguleika Bjarkar & Birkis.
Ef veitingarstaðir óska eftir kokteilseðlinum eða vilja panta Björk og Birki eru vinsamlega beðni um að hafa samband við Globus sími 522-2500 eða [email protected]
Nánar um Björk og Birki
Björk og Birki er ætlað að fanga upplifunina af íslenskri vornótt, augnablikinu þegar er nýstytt upp og döggin sest á blöð bjarkarinnar í birkivaxinni hlíðinni. Í hverri flösku eru greinar af birkitrjám handtýndar úr Hallormsstaðaskógi sem gefur þeim einstakt yfirbragð.
Björk og Birkir eru náttúruafurðir unnar úr íslensku birki, íslensku vatni og hágæða kornspíra. Sætum birkisafanum er safnað saman úr birkitrjánum og unnin í náttúrulegt sýróp sem gefur ferskt og eftirminnilegt bragð. Íslenska birkið er auðþekkt á smágerðu tenntu laufi og ljósum pappírskenndum berki. Við landnám Íslands er talið að allt að þriðjungur landsins hafi verið þakinn birkiskógi og hefur birkið því aðlagast vel íslenskum veðrum og vindum.
Í skrifum allt frá árinu 1860 hefur birki verið lofað fyrir marga góða og heilsusamlega eiginleika.
Smellið hér til að skoða kokteilseðilinn.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Keppni19 klukkustundir síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Markaðurinn1 dagur síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt3 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020



