Viðtöl, örfréttir & frumraun
TACO BY NIGHT á Bergsson
Fyrir stuttu heyrði ég að veitingastaðurinn Bergsson í Templarasundi, sem er vel þekktur fyrir frábæran morgunverð, væri nú farinn að bjóða upp á spennandi taco öll kvöld.
Veitingastaðurinn Bergsson er eins og áður sagði í Templarasundi eða nánar til tekið í kjallaranum rétt hinumegin við nafntogaðasta bar ársins 2019, ef einhver man þá eftir honum í dag. Áður var Við Tjörnina á efri hæðinni.
Staðurinn var opnaður 2012 og hefur alla tíð haft gott orð á sér fyrir fjölbreyttan og vandaðan mat úr úrvals hráefni. Bergsson hefur ávallt lagt sig fram við að bjóða upp á mat fyrir þá sem eru ekki neitt sérstaklega fyrir kjöt.
Morgunmaturinn hefir verið mjög vinsæll hjá þeim, en hann er afgreiddur frá klukkan 07:00 til 11:00 en um helgar er hann í boði allan daginn og þá sem bröns. Hádegisverðurinn er síðan opinn frá klukkan 11:00 til 16:00.
TACO BY NIGHT er spennandi viðbót sem hefst klukkan 17:00 og stendur til 22:00. Á taco seðlinum er boðið upp á margar tegundir af Taco en einnig er boðið upp á úrval af hliðarréttum ásamt girnilegu meðlæti, nasli auk salats.
Allir réttir á Taco seðlinum eiga rætur að rekja til Mexíkó, en gaman er fyrir hópa að droppa við og prófa mismunandi útgáfur og ljúka síðan máltíðinni með spennandi eftirréttum úr „villta vestrinu“.
Þegar mig bar að garði þá voru stúlkurnar í óða önn að skipta yfir í Taco by Night, að hengja upp skrautlega fána og annað krúttlegt skraut ásamt því að skreyta salinn. Gestir voru að týnast inn og fannst mér góð stemming að myndast.
Vinsælt
Ég spjallaði aðeins við þjónustustúlkurnar sem sögðu mér að kvöldin eru alltaf að verða vinsælli og að sum kvöld væri orðið meira eða minna fullt.
Fyrirkomulagið er einfalt og fljótlegt en ég pantaði mér taco af seðlinum og annað sem mig langaði í sem síðan kom eftir stutta stund snyrtilega framreitt, ekkert vandamál og var afburða gott. Aðrar leiðir eru í boði eins og að panta tilboðspakka og þá annað hvort fylgir bjór eða Margarita með.
Ég stoppaði frekar stutt en hefði vel geta hugsað mér að vera lengur í góðra vinahóp. Ég mæli eindregið með að þið rennið við á Bergsson og prófið matinn og ég veit að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum og ekki skemmir að verði er stillt í hóf.
Lifið heil.
Facebook: Bergsson mathús
Heimasíða: www.bergsson.net
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Girnilegt camembert jólatré með döðlu og pekan krönsi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Mikil uppbygging framundan á Hofsstöðum – Veitingastaðurinn með eigin framleiðslu og hráefni úr heimabyggð
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Ekta rjómaís með hvítu súkkulaði og piparkökum – Fullkominn á veisluborðið yfir hátíðarnar
-
Frétt3 dagar síðan
34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Wolt “wrapped” samantektin – Það sem Íslendingar pöntuðu á árinu 2024
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Kalkúnaveisla með öllu tilheyrandi
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Uppskrift – Fylltar kjúklingabringur með eplum, Dala höfðingja og rósmarín-hlynsírópsgljáa
-
Frétt2 dagar síðan
Innköllun á sviðasultu frá Kjarnafæði