Frétt
Eldum rétt kvartar yfir nafni Eldum strax
Lögfræðingur Eldum rétt hefur sent Eldum strax kvörtunarbréf þar sem þeir gera Eldum strax að sök að hafa brotið á vörumerkjaréttindum í eigu Eldum rétt ehf. og lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, að því er fram kemur á ruv.is.
Krafa er gerð um að Heimkaup hætti án tafar að nota auðkennið Eldum strax. Bréf sama efnis hefur einnig verið sent á framkvæmdastjóra Einn, tveir og elda ehf. Öll fyrirtækin bjóða upp á sams konar þjónustu, sala á tilbúnum matarpökkum ætluðum til eldunar heima.
Guðmundur Magnússon, framkvæmdastjóri Heimkaupa og Eldum strax, segir í samtali við fréttastofu ruv.is að hann telji að rétturinn sé þeirra megin og að erfitt verði fyrir Eldum rétt að fá þetta í gegn.
„Það er ekki hægt að halda því fram að „elda“ megi ekki koma fyrir í neinu núna sérstaklega þegar það er verið að bjóða þjónustu sem snýr að því að elda,“
segir Guðmundur í samtali við ruv.is sem fjallar nánar um málið hér.
Mynd: úr safni
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna
-
Keppni4 dagar síðanJakob Alf stóð uppi sem sigurvegari
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSkandinavísk matarupplifun vakti lukku á Siglufirði
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanDwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÍsak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðanEyjafjarðarsveit semur við Snæbjörn matreiðslumeistara til 2029





